Sólin Sólin Rís 11:21 • sest 15:39 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:30 • Síðdegis: 17:44 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:45 • Síðdegis: 23:47 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða svör voru mest lesin á Vísindavefnum árið 2024?

Ritstjórn Vísindavefsins

Svör um fjölda og stærð eldgosa á Reykjanesskaga, starfsstjórn, uppgreiðslu lána, og um það hvort svonefndir Tyrkjaránsmenn hafi eignast börn með íslenskum konum, voru mest lesnu nýju svör ársins 2024 á Vísindavefnum.

Fimm mest lesnu nýju svör ársins 2024

Eins og gefur að skilja eru umbrotin á Reykjanesskaga enn ofarlega í huga lesenda Vísindavefsins en árið 2023 voru þó enn fleiri svör af þeim toga á listanum, alls þrjú af þeim fimm vinsælustu. Einnig vekur athygli að svar um sögu 17. aldar er eitt af mest lesnu svörunum árið 2024 og virðist sem nú sé áhugi á sögu 16. og 17. aldar orðinn heldur meiri á Vísindavefnum en landnámsöld og víkingatímanum. Eldri svör um sögu 16. og 17. aldar sem fjölmargir lásu á árinu fjalla meðal annars um Stóradóm, Drekkingarhyl, galdrafárið og helstu atburði Tyrkjaránsins.

Hins vegar er ljóst að stjórnmálafræðin er senuþjófur ársins og svör um kosningar og stjórnmál hafa sjaldan eða aldrei verið meira lesin á Vísindavefnum. Ástæðan er væntanlega flestum ljós, enda var bæði kosið um nýjan forseta og nýja ríkisstjórn á árinu, auk forsetakosninga í Bandaríkjunum sem margir fylgdust með hér á landi. Fjögur mest lesnu svörin af þessum toga fjalla öll um yfirgripsmikil hugtök og fast á hæla þeirra fylgja svör um valdsvið forseta (reyndar svar um launakjör forseta skörinni hærra) og einnig ýtarlegt svar um kosningakerfið á Íslandi.

Mest lesnu svörin um stjórnmál og kosningar árið 2024

Umferð um Vísindavefinn var með sama móti og undanfarin tvö ár. Árlegar heimsóknir á árinu 2024 voru um tvær og hálf milljón og flettingar rúmar þrjár milljónir. Að meðaltali heimsækja um sjö þúsund manns Vísindavefinn daglega og fletta þar tæplega níu þúsund síðum. Gera má ráð fyrir að þrettán prósent þjóðarinnar heimsæki vefinn í hverri viku. Breiddin í lestri er veruleg og þannig getur fjöldi þeirra svara sem lesin eru á einum degi hæglega nálgast sex þúsund.

Í lokin er rétt að taka fram að þessi samantekt er aðallega til gamans gerð og þó svo að hægt sé að greina ákveðna efnisþætti í svörum sem lesendur hafa greinilega töluverðan áhuga á, munar oft litlu á lestri annarra svara sem fylgja þar skammt á eftir. Það ánægjulega er vitanlega hversu margir sýna vísindum og fræðum mikinn áhuga, bæði með því að senda inn spurningar um hvaðeina sem tengist vísindum og með lestri svaranna.

Heimild og mynd:
  • Tölur um aðsókn og heimsóknir á Vísindavefinn koma frá vefmælingu Matomo. Aðilar eins og NASA, Amnesty International og Sameinuðu þjóðirnar styðjast við sömu vefmælingu.
  • Mynd: © KRI.

Útgáfudagur

27.12.2024

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Hvaða svör voru mest lesin á Vísindavefnum árið 2024?“ Vísindavefurinn, 27. desember 2024, sótt 29. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=87348.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2024, 27. desember). Hvaða svör voru mest lesin á Vísindavefnum árið 2024? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87348

Ritstjórn Vísindavefsins. „Hvaða svör voru mest lesin á Vísindavefnum árið 2024?“ Vísindavefurinn. 27. des. 2024. Vefsíða. 29. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87348>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...