Vakthafandi Læknir Séstvallagötu 13 999 Stökustað Sími 7913000, t-póstur rinkeal@idnafahtkav.orgEins og ráða má af tölvupóstfanginu kemur það fyrir að VL æpir, enda fullyrða norskir lögreglumenn að hann hafi stolið Ópinu eftir norska spaugarann Munch, en um hann höfum við fjallað í löngu máli áður á Vísindavefnum. Vakthafandi Læknir er smekkmaður og drekkur eingöngu vígt vatn. Eins og glöggir áheyrendur vita er "honum" þágufallsjúkur með eindæmum enda étur hann mörgæsir. Í sumarfríum hefur sést til hans á Mont-Ras sem er vinsæll staður meðal hollenskra náttúruunnenda.
Þegar hann er ekki á tali við fjölmiðlamenn sönglar hann Bimbi rimbi rimm bamm og stærðfræðingar telja að hann sé eini maðurinn sem hafi reiknað út hornasummu einhyrnings með því að nota eingöngu frumtölur.
Við ráðleggjum öllum þeim sem vilja hitta Vakthafandi Lækni að halda í vestur og komast þannig fyrir austan sól og sunnan mána. Ef menn nenna því ekki þá geta þeir reynt að troða sér um tær og prófað að sitja einhvers staðar annars staðar en á rassinum með því að fylgja leiðbeiningum Vísindavefsins. Upphafið á spurningunni hljóðaði svona:
Ég hef tekið eftir að þið virðist hafa svar við ótrúlegustu spurningum. Það hefur verið mjög fróðlegt að lesa svörin ykkar og virðist viskubrunnurinn vera ótæmandi. Það er eitt sem hefur valdið mér smá hugarangri um þónokkra hríð. Það er alveg sama hvern ég spyr, enginn virðist þekkja manninn né vita nokkur deili á honum. Þess vegna langar mig til að freista þess að viskubrunnur ykkar sé yfirfullur sem fyrr og að þið getið svara mér og gefið mér einhverjar upplýsingar um það hver þessi frægi læknir er.Mynd:
Í stuttu spjalli við Vakthafandi Lækni rétt áðan kom fram að allt sem hér stendur er markleysa, enda er þetta föstudagssvar. Taki einhverjir lesendur þetta svar alvarlega er það alfarið á þeirra ábyrgð.