Hver er staðan á þágufallssýki í dag? Stendur yfirvöldum á sama? Verður bráðum jafnrétt að segja "mig langar" og "mér langar"?Vísindavefurinn krefst þess að algjört jafnræði ríki meðal falla landsins. Í fyrirmyndarríki framtíðarinnar skulu öll föll vera frjáls undan forsetningum, mannasetningum og kennisetningum. Í framtíðinni verða engir þágufallssjúkir, nefnifallsveikir, þolfallssýktir eða eignarfallsstola. Allir hafa fullan rétt til að fallbeygja eins og þá lystir, hver eftir sínu nefi, lengi lifi búrmæltir, þvoglmæltir og völumæltir! Í framtíðinni getur hið opinbera, mannanafnanefndin, beygingarvaldið eða fallákvörðunarnefndin ekki ákvarðað hvernig frjálsir borgarar fallbeygja frjáls orð þessa lands. Sá maður sem nefnir nefnifallið, notar nefnifall, sá sem þolir þolfallið, öðlast þolfall, sá sem þiggur þágufallið hlýtur þágufall, og sá sem eignar sér eignarfallið skal uppskera eilíft eignarfall. Lestu þennan texta í nefnifalli, þolfalli, þágufalli og eignarfalli.
Önnur spurning um sama efni: Er því mögulegu að vera svo langt leiddum í þágufallssýki að öllu því sem manni mælir sé í þágufalli?
Lesendur eru minntir á að þetta er föstudagssvar. Ef einhver tekur alvarlega eitthvað sem í því stendur er það algerlega á eigin ábyrgð hans eða hennar.