Sólin Sólin Rís 10:13 • sest 17:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 11:07 • Sest 18:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:04 • Síðdegis: 19:23 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:51 • Síðdegis: 13:24 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Gætu virkjanir og uppistöðulón verið í hættu ef Bárðarbunga gýs?

Haraldur Sigurðsson

Árið 1951 birtist grein í Lesbók Morgunblaðsins eftir ungan jarðfræðing, Guðmund Kjartansson. Þar lýsir hann miklu hrauni, sem hann nefnir Þjórsárhraun og birtir fyrsta kortið af útbreiðslu unga hraunsins um Suðurland og alla leið á haf út hjá Stokkseyri og Eyrarbakka. Við vitum nú að Þjórsárhraun er stærsta hraun sem runnið hefur á jörðinni síðan ísöldinni lauk, eða síðastliðin tíu þúsund ár. Hraunið á upptök sín í Heljargjá í Veiðivötnum, en kvikan kemur úr eldstöðinni Bárðarbungu undir Vatnajökli. Bárðarbunga varð þar með eitt merkasta eldfjall jarðar.

Þetta risastóra eldgos frá Bárðarbungu varð fyrir um 8000 árum og framleiddi kvikumagn yfir 25 km3 sem er nær tvöfalt meira en kom upp í Skaftáreldum árið 1783. Gosið sem framleiddi Þjórsárhraun var stórt en samt var sprengigosið í Tambora í Indónesíu árið 1815 nær tvisvar sinnum stærra, eða rúmlega 40 km3.[1] Til samanburðar kom upp 1,3 km3 af hraunkviku árið 2014 þegar Holuhraun rann frá Bárðarbungu. Öll nýju gosin á Reykjanesi eru örsmá í samanburði við það.

Þjórsárhraun myndaðist á 25-30 km langri gossprungu í Veiðivatnasveimi Bárðbarbungukerfis fyrir um ~8700 árum. Gosið var svo öflugt og bráðin svo heit og seigjulítil, að hraunið rann jafn óðum burt undan vægum halla, um 130 km til sjávar milli Þjórsár og Ölfusár.

Þegar Bárðarbunga tekur stóran kipp, eins og jarðskjálftana hinn 14. janúar 2025, þá er viðbúið að jarðvísindamenn taki einnig kipp og fylgist vel með því enginn veit hvaða ósköp gætu verið framundan. Sumir af þessum nýju skjálftum nálguðust 5 af stærð. Það er því full ástæða til að athuga málið. Þetta mikla eldfjall situr nákvæmlega í miðjunni yfir heita reitnum sem liggur í möttlinum undir jarðskorpu Íslands. Á sínum tíma streymdi Þjórsárhraun um 140 km leið frá upptökum og til sjávar en ekki er vitað hve langt hraunið rann eftir hafsbotninum sunnan Íslands. Talið er að hraunið hafi flatarmál sem svarar um 1000 km2 og meðalþykkt um 22 m. Árni Hjartarson ritaði merka grein um Þjórsárhraun í Náttúrufræðinginn (1988).

Kvikan sem myndaði Þjórsárhraun er frá Bárðarbungu eins og áður sagði, en gosið var í sprungurima Bárðarbungu sem liggur til SV af öskjunni miklu, í Heljargjá og Veiðivötnum. Askjan er um 65 km2 að flatarmáli og lögun hennar kemur best fram þegar jökullinn er fjarlægður, eins og á mynd Helga Björnssonar (2009) hér fyrir neðan. Þjórsárhraunið hefur flæmst um Landsveit, Gnúpverjahrepp, Skeið og Flóa. Stærstu fljót Suðurlands, Þjórsá, Hvítá og Ölfusá streyma með jöðrum hraunsins. Það er talið að um 27 flæðigos hafi orðið á sögulegum tíma innan eldstöðvakerfisins sem liggur suðvestur frá Bárðarbungu. Þar er til dæmis Tröllahraun (1862 til 1864), Frambruni (13. öld), Vatnaöldur (870), Veiðivötn (1477) og fleiri (1711 til 1729). Þjórsárhraun valdi sinn farveg til sjávar eftir fljótum sem voru fyrir í landslaginu.

Askja Bárðarbungu er um 65 km2 að flatarmáli. Lögun hennar sést best þegar jökullinn er fjarlægður, eins og hér í mynd sem Helgi Björnsson gerði (2009).

Fljótin sem nú streyma með eða á Þjórsárhrauni eru kjarninn í vatnsorkuvirkjun Íslands. Þá vaknar spurning um hversu viðkvæm eru vatnsorkuverin og uppistöðulón fyrir gosum í framtíð. Búrfellsstöð var reist á árunum 1966 til 1972 210 MW að stærð. Svo komu þær hver á fætur annarri, Sigöldustöð 150 MW 1973, Hrauneyjafossstöð 210 MW 1978, Sultartangastöð 120 MW 1999, Vatnsfellsstöð 90 MW árið 2001, Búðarhálsstöð 95 MW 2014. Á teikniborðinu eru þrjár til viðbótar; Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.

Fyrr á árum var lítið sem ekkert rætt um hættu sem virkjunum gæti stafað af hraunrennsli. Þjórsárhraun var talið svo gamalt að slíkt gos var ekki tekið með í reikninginn. Slík risagos voru talin hafa myndast fljótlega eftir að jökulfarginu létti af landinu strax eftir að ísöld lauk og því ekki inn í myndinni í dag eða í náinni framtíð. Sú kenning er við lýði enn í dag, en er þar með hægt að útiloka stór hraungos frá Bárðarbungukerfinu? Höfundur þessa svars telur að það sé brýn nauðsyn að endurskoða málið, einfaldlega vegna þess að það gæti verið svo mikið í húfi fyrir allan orkubúskap Íslands. Það er ljóst að kvika heldur áfram að safnast fyrir undir öskju Bárðarbungu.

Myndir:

Þessi texti birtist upprunalega á Facebook-síðu Haraldar og birtist hér með góðfúslegu leyfi höfundar. Textinn er aðlagaður Vísindavefnum.

Höfundur

Haraldur Sigurðsson

eldfjallafræðingur

Útgáfudagur

28.1.2025

Spyrjandi

Jón Þór, ritstjórn

Tilvísun

Haraldur Sigurðsson. „Gætu virkjanir og uppistöðulón verið í hættu ef Bárðarbunga gýs?“ Vísindavefurinn, 28. janúar 2025, sótt 30. janúar 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87471.

Haraldur Sigurðsson. (2025, 28. janúar). Gætu virkjanir og uppistöðulón verið í hættu ef Bárðarbunga gýs? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87471

Haraldur Sigurðsson. „Gætu virkjanir og uppistöðulón verið í hættu ef Bárðarbunga gýs?“ Vísindavefurinn. 28. jan. 2025. Vefsíða. 30. jan. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87471>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Gætu virkjanir og uppistöðulón verið í hættu ef Bárðarbunga gýs?
Árið 1951 birtist grein í Lesbók Morgunblaðsins eftir ungan jarðfræðing, Guðmund Kjartansson. Þar lýsir hann miklu hrauni, sem hann nefnir Þjórsárhraun og birtir fyrsta kortið af útbreiðslu unga hraunsins um Suðurland og alla leið á haf út hjá Stokkseyri og Eyrarbakka. Við vitum nú að Þjórsárhraun er stærsta hraun sem runnið hefur á jörðinni síðan ísöldinni lauk, eða síðastliðin tíu þúsund ár. Hraunið á upptök sín í Heljargjá í Veiðivötnum, en kvikan kemur úr eldstöðinni Bárðarbungu undir Vatnajökli. Bárðarbunga varð þar með eitt merkasta eldfjall jarðar.

Þetta risastóra eldgos frá Bárðarbungu varð fyrir um 8000 árum og framleiddi kvikumagn yfir 25 km3 sem er nær tvöfalt meira en kom upp í Skaftáreldum árið 1783. Gosið sem framleiddi Þjórsárhraun var stórt en samt var sprengigosið í Tambora í Indónesíu árið 1815 nær tvisvar sinnum stærra, eða rúmlega 40 km3.[1] Til samanburðar kom upp 1,3 km3 af hraunkviku árið 2014 þegar Holuhraun rann frá Bárðarbungu. Öll nýju gosin á Reykjanesi eru örsmá í samanburði við það.

Þjórsárhraun myndaðist á 25-30 km langri gossprungu í Veiðivatnasveimi Bárðbarbungukerfis fyrir um ~8700 árum. Gosið var svo öflugt og bráðin svo heit og seigjulítil, að hraunið rann jafn óðum burt undan vægum halla, um 130 km til sjávar milli Þjórsár og Ölfusár.

Þegar Bárðarbunga tekur stóran kipp, eins og jarðskjálftana hinn 14. janúar 2025, þá er viðbúið að jarðvísindamenn taki einnig kipp og fylgist vel með því enginn veit hvaða ósköp gætu verið framundan. Sumir af þessum nýju skjálftum nálguðust 5 af stærð. Það er því full ástæða til að athuga málið. Þetta mikla eldfjall situr nákvæmlega í miðjunni yfir heita reitnum sem liggur í möttlinum undir jarðskorpu Íslands. Á sínum tíma streymdi Þjórsárhraun um 140 km leið frá upptökum og til sjávar en ekki er vitað hve langt hraunið rann eftir hafsbotninum sunnan Íslands. Talið er að hraunið hafi flatarmál sem svarar um 1000 km2 og meðalþykkt um 22 m. Árni Hjartarson ritaði merka grein um Þjórsárhraun í Náttúrufræðinginn (1988).

Kvikan sem myndaði Þjórsárhraun er frá Bárðarbungu eins og áður sagði, en gosið var í sprungurima Bárðarbungu sem liggur til SV af öskjunni miklu, í Heljargjá og Veiðivötnum. Askjan er um 65 km2 að flatarmáli og lögun hennar kemur best fram þegar jökullinn er fjarlægður, eins og á mynd Helga Björnssonar (2009) hér fyrir neðan. Þjórsárhraunið hefur flæmst um Landsveit, Gnúpverjahrepp, Skeið og Flóa. Stærstu fljót Suðurlands, Þjórsá, Hvítá og Ölfusá streyma með jöðrum hraunsins. Það er talið að um 27 flæðigos hafi orðið á sögulegum tíma innan eldstöðvakerfisins sem liggur suðvestur frá Bárðarbungu. Þar er til dæmis Tröllahraun (1862 til 1864), Frambruni (13. öld), Vatnaöldur (870), Veiðivötn (1477) og fleiri (1711 til 1729). Þjórsárhraun valdi sinn farveg til sjávar eftir fljótum sem voru fyrir í landslaginu.

Askja Bárðarbungu er um 65 km2 að flatarmáli. Lögun hennar sést best þegar jökullinn er fjarlægður, eins og hér í mynd sem Helgi Björnsson gerði (2009).

Fljótin sem nú streyma með eða á Þjórsárhrauni eru kjarninn í vatnsorkuvirkjun Íslands. Þá vaknar spurning um hversu viðkvæm eru vatnsorkuverin og uppistöðulón fyrir gosum í framtíð. Búrfellsstöð var reist á árunum 1966 til 1972 210 MW að stærð. Svo komu þær hver á fætur annarri, Sigöldustöð 150 MW 1973, Hrauneyjafossstöð 210 MW 1978, Sultartangastöð 120 MW 1999, Vatnsfellsstöð 90 MW árið 2001, Búðarhálsstöð 95 MW 2014. Á teikniborðinu eru þrjár til viðbótar; Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.

Fyrr á árum var lítið sem ekkert rætt um hættu sem virkjunum gæti stafað af hraunrennsli. Þjórsárhraun var talið svo gamalt að slíkt gos var ekki tekið með í reikninginn. Slík risagos voru talin hafa myndast fljótlega eftir að jökulfarginu létti af landinu strax eftir að ísöld lauk og því ekki inn í myndinni í dag eða í náinni framtíð. Sú kenning er við lýði enn í dag, en er þar með hægt að útiloka stór hraungos frá Bárðarbungukerfinu? Höfundur þessa svars telur að það sé brýn nauðsyn að endurskoða málið, einfaldlega vegna þess að það gæti verið svo mikið í húfi fyrir allan orkubúskap Íslands. Það er ljóst að kvika heldur áfram að safnast fyrir undir öskju Bárðarbungu.

Myndir:

Þessi texti birtist upprunalega á Facebook-síðu Haraldar og birtist hér með góðfúslegu leyfi höfundar. Textinn er aðlagaður Vísindavefnum....