Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Varmaflutningur frá venjulegum miðstöðvarofnum skiptist gróflega til helminga. Annars vegar verður varmageislun frá yfirborði ofnsins til umhverfisins, og hins vegar varmaburður með loftinu sem leikur um ofninn. Ef ofninn væri hins vegar úr póleruðu áli, þá yrði varmaflutningur með geislun nær enginn og hitunarafköstin mundu minnka um helming. Geislun frá póleraða álinu er aðeins um 4% af geislun svarthlutar.
Það merkilega er að hvít málning er nánast "svört" með tilliti til varmageislunar því að hvítmálaður flötur geislar 90-92% af geislun hins fullkomna svarthlutar. Svört málning geislar 95-98% af svarthlutargeislun. Þannig myndu afköst ofnsins aukast um 2-3 % við að mála hann svartan í stað þess að hafa hann hvítan.
Hér er einnig forvitnilegt að bera saman við lit á dýrum. Þar sem hvítir hlutir endurkasta meira ljósi en dökkir, mætti ætla að það væri að þessu leyti óhagstætt fyrir ísbjörninn að vera hvítur; hann fari þá á mis við sólarorku sem hann gæti annars nýtt til að halda á sér hita. En hér er sannarlega ekki allt sem sýnist, frekar en með hvítu ofnana. Það hefur sem sé komið í ljós að ísbirnir og nokkur önnur hvít heimskautadýr eru nánast svört í útfjólubláu ljósi. Þau drekka með öðrum orðum í sig mikla orku frá slíkri geislun og nýta hana til að halda á sér hita.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
Hversu miklu meiri nýtni fáum við úr miðstöðvarofnum ef við málum þá svarta?
Þorsteinn Egilson spurði sem hér segir:
Hlutir með dökkt yfirborð taka betur við og senda betur frá sér varmageislun en ljósir hlutir. - Hvers vegna eru þá ofnar til húsahitunar hafðir hvítir?
Páll Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvaða máli skiptir hvort miðstöðvarofnar eru hvítir eða svartir?“ Vísindavefurinn, 19. febrúar 2000, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=126.
Páll Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. (2000, 19. febrúar). Hvaða máli skiptir hvort miðstöðvarofnar eru hvítir eða svartir? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=126
Páll Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvaða máli skiptir hvort miðstöðvarofnar eru hvítir eða svartir?“ Vísindavefurinn. 19. feb. 2000. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=126>.