Hvað merkir örnefnið Lali? Þetta er heiti á fjalli við Hafravatn.Ekki er ljóst hvað örnefnið Lali merkir. Nafnið virðist vera einstakt á Íslandi og á við fell norður af Hafrahlíð við Hafravatn í Mosfellsbæ. Fjallið (og e.t.v. nafnið) virðist vera þeim sem búa í Mosfellsbæ afar kært og var skilti með nafninu sett upp árið 2021 á vegum verkefnisins Okkar Mosó. Nafnið er sennilega ekki gamalt en kemur fyrir í örnefnalýsingum fyrir Þormóðsdal, Reykjahvol og Sólvelli, og Úlfarsfell, en einnig er nafnsins getið í landamerkjabréfi. Þessar heimildir eru allar frá 20. öld en þeim ber ekki saman um til hvaða kennileitis nafnið vísar: ýmist er sagt að það sé fell, fjall, hnúkur, klettur, torfa og þúfa. Heimildir um Lala eru þessar helstar (í tímaröð með feitletruðum upplýsingum um nafnið):
- Landamerkjabók Gullbringu- og Kjósarsýslu [1885-1969], 1924 fyrir Þormóðsdal: „Gagnvart Reykjahvoli: a) Frá hornmarkinu á Uxamýrarrófum beint í fuglaþufuna á Lala (sem er klettur sunnan Borgardalsmynnis). b) frá nefndri Lala-þúfu, bein lína í „Grettistak“ suðaustan á Þverfelli).“
- Örnefnaskrá fyrir Reykjahvol eftir Ara Gíslason, gerð árið 1968 og farið yfir af Ólafi Þórðarsyni frá Æsustöðum: „Sunnan við Borgardal er hæð, sem nefnd er Lali, norður af norðvesturhorni Hafrahlíðar. Upp af og norðan í Hádegisfjalli er Dagmálavarða. Þá er sólin var þar kl. 9, átti að koma með féð til mjalta. Upp af Uxamýrinni fyrrnefndu eru Rjúpnabrekkur fram með Hádegisfjalli. Síðan er Lali eða Lalahnúkur og Lalatorfa, stór græn torfa niður af hnúknum.“
- Örnefnaskrá fyrir Þormóðsdal eftir Tryggva Einarsson í Miðdal (fæddur í Miðdal 1901), gerð á árunum 1976–1977: „Spölkorn norður af Hlíðarhorni er fell, sem Lali heitir. En mörk milli Þormóðsdals og Reykjahvols eru bein lína úr Háahnjúk á Úlfarsfelli í Lala.“
- Örnefnaskrá fyrir Reykjahvol og Sólvelli (örnefni í landi Akra, Efri-hvols, Reykjahvols og Sólvalla í Mosfellsbæ) eftir Magnús Guðmundsson, gerð árið 1992: „Upp af Uxamýrinni fyrrnefndu og norðvestan í Hádegisfjalli eru Rjúpnabrekkur. Lali eða Lalahnúkur er áberandi fjall sunnan við Borgardal. Lalatorfa er stór græn torfa sunnan og vestan við hnjúkinn, einnig nefnd Lalaþúfa sbr. landamerkjaskrá. Syðri endi fellsins heitir Hlíðarhorn.“
- Hallgrímur J. Ámundason. (2019, 25. nóvember). Af hverju heitir fjallið Laki, sem Lakagígar eru nefndir eftir? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=77907
- Þjóðskjalasafn Íslands, Landamerkjabók Gullbringu- og Kjósarsýslu [1885-1969], uppskrift. https://heimildir.is/wp-content/uploads/Jardavefur/Gullbringu-og-Kjosarsysla-landamerkjabok-1885-1969-samlesin-uppskrift.pdf
- Ari Gíslason o.fl. (1967). Úlafarsfell. Nafnið.is. https://xn--nafni-mta.is/ornefnaskra/12156
- Ari Gíslason, Ólafur Þórðarson. (1968). Reykjahvoll. Nafnið.is. https://xn--nafni-mta.is/ornefnaskra/12143
- Magnús Guðmundsson. (1992). Reykjahvoll og Stólvellir. Nafnið.is. https://xn--nafni-mta.is/ornefnaskra/24861
- Tryggvi Einarsson. (1976-77). Þormóðsdalur. Nafnið.is. https://xn--nafni-mta.is/ornefnaskra/12161
- Yfirlitsmynd: Hafravatn – skilti. Ferlir.
- Kort: Náttúrufræðistofnun - Örnefnasjá.
- Mynd úr bók: Landsbókasafn Íslands. Gullbringu- og Kjósarsýsla. Landamerkjabók og registur.