Það er meira að segja deilt um það hversu mörg meginlöndin eru hvað þá að það sé hægt að segja til um fjölda eyja. Bara eyjarnar á Breiðafirðinum eru sagðar nær óteljandi þannig að við getum rétt ímyndað okkur hversu flókið mál það væri að telja allar eyjar heimsins, hversu smáar sem þær eru. Enda lendum við þá í vanda við að skilgreina hvað er eyja og hvað ekki eins og fjallað er um í svarinu Já, en hvað eru eyjarnar á Breiðafirði margar?Á Vísindavefnum eru fleiri svör um eyjar, til dæmis:
- Af hverju er Ástralía meginland en Grænland eyja? eftir Emilíu Dagnýju Sveinbjörnsdóttur
- Hvað eru margar eyjar og sker á Íslandi? eftir ÞV
- Hversu algengt er að nýjar eyjar verði til í eldgosum? eftir Sigurð Steinþórsson