Ef við ætluðum okkur að ganga til Úranusar (en áður hefur verið spurt um hér á Vísindavefnum hve langan tíma tæki að ganga til Plútó), getum við hugsað okkur að gönguhraðinn væri svipaður í geimnum og á jörðu niðri, eða um 5 km/klst. Þá tæki gangan 544.278.000 klst eða 32.656.680.000 mínútur ef stöðugt væri haldið áfram og ekki stöðvað til hvíldar eða svefns. Miðað við átta tíma hvíld á dag tæki ferðalagið um það bil 48.985.020.000 mínútur. Það samsvarar 816.417.000 klst, 34.017.375 dögum, eða um 94.000 árum. Slíkur fararmáti virðist ekki gáfulegur miðað við tækni nútímans þannig að við skulum snúa okkur að öðrum möguleikum. Eðlilegur flughraði Concorde-þotu, hraðskreiðustu farþegaþotu heims, er nálægt tvöföldum hljóðhraða, eða 2.150 km/klst. Ef hægt væri að fljúga Concorde í geimnum, sem er álíka vandkvæðum bundið og gangan vegna þess að hreyflar þotunnar þurfa andrúmsloft til að knýja sig áfram, væri hún 1.265.763 klst á leiðinni, eða 75.945.780 mínútur. Talið í árum og mánuðum, um það bil 144 ár og sex mánuðir. Líklegt er að nauðsynlegur búnaður til að lifa af í geimnum kæmist ekki fyrir í þotunni, en annars væri um nokkuð þægilegan ferðamáta að ræða ef maður hefði nógan tíma! Lífaldur manna myndi einnig aðeins leyfa annarri eða þriðju kynslóð ferðalanganna að ná til Úranusar. Þriðji möguleikinn væri að nýta sér tæknina eins og hún gerist best í dag og ferðast með geimskutlu eða geimflaug. Slíkar mannaðar flaugar hafa ekki farið lengra en til tunglsins en ættu að geta náð hraðanum 27.360 km/klst (sporbaugshraða) með því að nýta sér þyngdarafl reikistjarnanna og kasta sér af einum sporbaug yfir á annan. Ferðalagið til Úranusar tæki á þennan hátt 99.466 klst, eða 5.967.960 mínútur. Það jafngildir hinum viðráðanlega tíma 11 árum og 4 mánuðum ef áhuginn væri virkilega fyrir hendi. Mesti hraði sem við vitum um er hraði ljóssins. Hvort hægt sé að ná honum er allt annað mál. Miðað við töluna 2,9979*105 km/s, eins og eðlisfræðingar vilja tákna ljóshraðann, er ljósið 9.077,58 sekúndur á leiðinni frá jörðu til Úranusar, eða 151 mínútu og 20 sekúndur um það bil. Ferðatíminn tveir og hálfur klukkutími til Úranusar væri því eins og að keyra á milli Reykjavíkur og Blönduóss í góðu færi! Heimildir og myndir:
- Úranus á Encyclopædia Britannica
- Concorde-þotan á vef British Airways
- Um sólkerfið og ljóshraða
- Um hraða í geimnum og líkamann
Þetta svar er eftir grunnskólanemanda á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.