Við þekkjum dóm Guðs á krossi og í upprisu Krists sem er endanlegur, og hluti þess dóms og sigurs var að rífa niður hlið heljar. Já, starf Jesú var og er að rífa niður öll víti. Við þekkjum öll að þær kvalir sem óttaslegin samviska veldur, þær eru oft slíkar að það er eins og við líðum í samvisku okkar eilífan dóm og kvöl. Þrátt fyrir að tímalega vari hún aðeins stutta stund. Því það er eins og þjáningin, og þá sérstaklega andleg þjáning, geti gert andartak að heilli eilífð. Á meðan gleðin getur gert eilífðina að andartaki. Og hvað gerði og gerir Kristur annað með fyrirgefningarorði sínu, en að leysa okkur undan þessum eilífa dómi og þjáningu okkar, og þá til gleði og friðar í honum. Hvað opinberast þá í dóminum á efsta degi? Þar mun opinberast hvernig við létum orð hans móta líf okkar og verk. Því eins og Páll segir:Við vísum að öðru leyti í svör sömu höfunda við spurningunni Hvert fer sálin eftir dauðann? og Er himnaríki til?Annan grundvöll getur enginn lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur. En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey eða hálm þá mun verk hvers um sig verða augljóst. Dagurinn mun leiða það í ljós, af því að hann opinberast í eldi og eldurinn mun prófa hvílíkt verk hvers og eins er. Ef nú verk einhvers fær staðist, það er hann byggir ofan á, mun hann taka laun. Ef verkið brennur upp, mun hann bíða tjón. Sjálfur mun hann frelsaður verða, en þó eins og úr eldi.“ 1 Kor 3.11—15.[…] Hittum við þá sem við elskum hinu megin? Já og hina líka. - Úr erindi Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, fluttu á fundi KFUM 17. febrúar 1998: Sigur Krists er endurlausn okkar.
Hver eru inntökuskilyrðin í Himnaríki?
Útgáfudagur
15.9.2000
Spyrjandi
Sæmundur Oddsson
Tilvísun
Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson. „Hver eru inntökuskilyrðin í Himnaríki?“ Vísindavefurinn, 15. september 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=911.
Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson. (2000, 15. september). Hver eru inntökuskilyrðin í Himnaríki? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=911
Haukur Már Helgason og Sigurjón Árni Eyjólfsson. „Hver eru inntökuskilyrðin í Himnaríki?“ Vísindavefurinn. 15. sep. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=911>.