Sólin Sólin Rís 10:16 • sest 17:07 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 11:25 • Sest 16:27 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:28 • Síðdegis: 18:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:13 • Síðdegis: 12:47 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er nafnið Freyja komið beint úr norrænni goðafræði eða merkir það einfaldlega húsfreyja?

Guðrún Kvaran

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Ég var að pæla hvað merkir Freyja? Er það einnig úr norrænni goðafræði eða merkir það líka húsfreyja?

Freyja er gyðja ástar og frjósemi í norrænni goðafræði. Hún er af ætt vana en bjó ásamt bróður sínum Frey og föður sínum Nirði í Ásgarði, bústað goða, en þangað voru þau send sem gíslar og vináttuvottur eftir stríð þessara tveggja ætta, ása og vana.

Fyrir utan að vera gyðjuheiti er orðið freyja notað í merkingunni ‘hefðarkona, húsfreyja’, samanber kvæðið sem svo oft er sungið um konur: Fósturlandsins freyja / fagra vanadís.

Freyja er einnig vel þekkt kvenmannsnafn sem varð vinsælt í lok 19. aldar. Það er af sömu rót og frú sem þekkist í öllum germönskum málum.

Fyrir utan að vera gyðjuheiti er orðið freyja notað í merkingunni ‘hefðarkona, húsfreyja’. Freyja ferðaðist um í vagni sem tveir kettir drógu.

Myndir:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

27.1.2025

Spyrjandi

Sólveig Freyja

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Er nafnið Freyja komið beint úr norrænni goðafræði eða merkir það einfaldlega húsfreyja?“ Vísindavefurinn, 27. janúar 2025, sótt 29. janúar 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87226.

Guðrún Kvaran. (2025, 27. janúar). Er nafnið Freyja komið beint úr norrænni goðafræði eða merkir það einfaldlega húsfreyja? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87226

Guðrún Kvaran. „Er nafnið Freyja komið beint úr norrænni goðafræði eða merkir það einfaldlega húsfreyja?“ Vísindavefurinn. 27. jan. 2025. Vefsíða. 29. jan. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87226>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...