Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Snæuglur (Bubo scandiacus) verða nokkuð gamlar miðað við fugla. Talið er að villtar snæuglur verði venjulega yfir 10 ára gamlar. Eins og með margar aðrar skepnur geta snæuglur í haldi manna náð hærri aldri en villtir fuglar í náttúrunni. Til eru heimildir um að snæugla í vörslu manna hafi náð 28 ára aldri.
Snæuglan er afar stór og þrekvaxinn fugl, 53-66 cm löng, rúmlega 2 kg og vænghaf hennar er allt að 170 cm. Hún verpir allt í kringum Norður-Íshafið og jafnvel á Íslandi stöku sinnum.
Nánar er fjallað um snæuglur í svari Jóns Más Halldórssonar við spurningunni Hvernig er snæugla flokkuð frá ríki til tegundar?Heimildir:
Jóhann Óli Hilmarsson. 2000. Íslenskur fuglavísir. Reykjavík: Iðunn.
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.