Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Til að búa til glært gler á einfaldasta formi þarf að blanda saman við hátt hitastig, sandi og efnum sem innihalda frumeindirnar kalsín og natrín auk súrefnis og kolefnis.
Þegar efnin eru hituð blandast þau saman á fljótandi formi og koltvíildi rýkur burt. Síðan er blandan snöggkæld og við það ná frumeindirnar ekki að raða sér saman á reglubundinn hátt. Í staðinn heldur efnið vökvaformi sínu og gler er því í rauninni frystur vökvi.
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.