illt í maga - ult í maga - ult í muga - ult í mumga - ult í mumba - ult í mumbinu - ult í bumbinu => bumbultSamkvæmt þessari kenningu á stráksi einn sem fékk ís á góðviðrisdegi sumarið 2010 að hafa tilkynnt pabba sínum að honum væri illt í maga. Pabbinn hins vegar heyrði og endurtók ult í maga gáttaður við konu sína. Hún heyrði hins vegar ult í muga og var enn gáttaðri. Svo vildi til að rannsóknarteymi utan úr geimi var um þær mundir að rannsaka fjölskylduna. Teymið var ekki alveg búið að ná valdi á íslensku hljóðunum og heyrði ult í mumga. Með þessa vitneskju í farteskinu skundaði teymið fram í tímann til ársins 2647 og skjalfesti þar þessa vitneskju sína. Skjalavörðurinn var hins vegar ekki búinn að drekka kaffibollann sinn þann daginn og skjalfesti því óvart ult í bumbinu. Seinna ætlaði annað rannsóknarteymi aftur til jarðarinnar og nýta þessa íslenskukunnáttu sem skjalfest hafði verið. Í tímaflakkinu varð talnaruglingur svo farið var til 1010 en ekki 2010. Rannsóknarteymið virðist þó ekki hafa uppgötvað að það var að heimsækja annan tíma en ætlunin var. Á Íslandi fengu meðlimir teymisins nokkuð mikið af súrum mat. Ákváðu þeir að tjá heimamönnum að þeim væri bumbult og nudduðu magann í leiðinni. Gáttaðir heimamenn ákváðu að taka þetta orð upp sem og siðinn að nudda á sér magann til áhersluauka. Margar UFO-færslur styðja þessa kenningu. Sumum í vísinda- og fræðaheiminum þykir hins vegar of margar tilviljanir ráða ferðinni í þessari kenningu. Ef hún reynist þó rétt þá fælist eðli heimsins í: tilviljanakenndum tilviljunum og tímaflakki. Atlantis gengur hins vegar út á þessa hljóðbreytingu:
illt í maga - bylt í maga - bult í mumga - bult í umga - bult í umba- bult í umbi(inu)Þessi kenning gengur út á að hin forna Atlantis hafi í raun verið eyja suðaustur af Íslandi þar sem hunang draup af hverju strái og norrænt mál var talað. Hins vegar hafi sú bölvun legið yfir þessari paradísareyju að hún myndi sökkva í sæ árið 777 og engar leifar af henni finnast nema í munnmælasögum. Ábúendur, sem deildu allsnægtum eyjunnar systkinalega á milli sín, eyddu tíma sínum í hógværa listsköpun sem og skrif um eðli heimsins en þann leyndardóm höfðu þau öll á hreinu. Eini vandi eyjabúa var að þeim var oft illt í maga ‒ en notuðu yfir það orðfærið bylt í maga ‒ því þeim þótti fyndið að eini byltingakraftur eyjunnar var í maga þeirra. Einn daginn gerðist það þó að einn eyjabúa sem var úti á báti sínum, á meðan fiskarnir hoppuðu um borð um bátinn tilbúnir að fórna lífi sínu til átu, lenti í óvenjulegum öldugangi sem leiddi hann upp að Íslandsströndum. Þar hitti hann fyrir fólk sem tók honum með nokkru afskiptaleysi uns hann færði þeim fiskinn sem var um borð. Þá var haldin mikil veisla við ströndina og öl haft um hönd. Eyjabúinn fékk brátt í magann og tjáði heimamönnum að honum væri bylt í maga. Hreimur hans var þeim ókunnugur svo þeim heyrðist hann segja bult í mumga. Héldu þau að hér væri á ferðinni réttara mál og hófu að nota þetta orðatiltæki þegar þau fundu til í maganum. Í gegnum aldirnar urðu svo þrjár aðrar hljóðbreytingar þannig að um 1010 var bult í mumga orðið að bult í umbinu eða bumbult. Jarðvísindamenn leita enn leifa þessarar eyju þó svo að munnmælasögurnar segja að þær séu ekki til. Sumt málvísindafólk segir margar heimildir vera til um að vera bult í umbinu en önnur þeirra vilja þó meina að það séu aðeins svokölluð speglunarvilla í gömlum heimildum á hinu rétta: ult í bumbinu. Ef þessi kenning reynist rétt þá er eðli heimsins eftirfarandi: örlög og engar tilviljanir. Enn hefur vísinda- og fræðaheimurinn ekki komið sér saman um hvor kenningaskólinn sé hinn eini, sanni og rétti. En álíta má að þetta sé mikilvægasta deila vísindanna enda gefi hún lokasvar um eðli heimsins og hvort örlög ráði lífum okkar eða tilviljanir. Mynd:
- The Persistence of Memory - Wikipedia, the free encyclopedia. (Sótt 21.07.2013).
Við bendum þeim sem ekki hafa áttað sig á því að þetta svar er föstudagssvar og ber því ekki að taka sem heilagan sannleik!