Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Með orðinu efnisgrein er átt við texta milli greinaskila. Þessi texti er til dæmis tvær efnisgreinar. Textinn getur verið ein setning eða margar setningar og er venja að hefja nýja efnisgrein á nýrri línu, oftast inndreginni. Í lagamáli er þessi sami texti oftast nefndur málsgrein en í nýrri handbókum í setningafræði er málsgrein haft um þann texta sem stendur milli punkta.
Á Vísindavefnum er að finna sérstakt svar um orðið málsgrein (Hvað er málsgrein?) og er lesendum bent á að kynna sér það vilji þeir fræðast nánar.
Guðrún Kvaran. „Hver er munurinn á efnisgrein og málsgrein?“ Vísindavefurinn, 25. ágúst 2006, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6149.
Guðrún Kvaran. (2006, 25. ágúst). Hver er munurinn á efnisgrein og málsgrein? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6149
Guðrún Kvaran. „Hver er munurinn á efnisgrein og málsgrein?“ Vísindavefurinn. 25. ágú. 2006. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6149>.