Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Eiffelturninn er eitt þekktasta tákn Parísarborgar og hefur verið sóttur heim af yfir 200 milljón manns.
Forsaga turnsins er að halda átti heimssýningu í París árið 1889 í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá frönsku byltingunni, en byltingin gjörbreytti á sínum tíma stjórnkerfi Frakklands. Haldin var samkeppni um minnismerki hátíðarinnar og hugmynd verkfræðingsins Gustaves Eiffels varð fyrir valinu. Hafist var handa við að reisa turninn sem við hann er kenndur árið 1887.
Hér sést Eiffelturninn hálfkláraður í júlí árið 1888.
Um 300 manns tókst að ljúka verkinu á tveimur árum; Eiffelturninn var vígður 31. mars árið 1889 og opnaður almenningi 6. maí sama ár. Turninn var 300 metrar á hæð sem gerði hann að hæstu byggingu heims. Þessum titli hélt Eiffelturninn allt til ársins 1930 þegar Chrystlerbyggingin var reist í New York. Eiffelturninn er nú um 322 metrar á hæð ef tekin er með hæð útvarpsloftnets sem sett var á topp turnsins árið 1959.
Heimildir og mynd
Kolbrún Huld Þórarinsdóttir. „Hver byggði Eiffelturninn, hvers vegna var hann byggður og hvenær?“ Vísindavefurinn, 31. júlí 2006, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6097.
Kolbrún Huld Þórarinsdóttir. (2006, 31. júlí). Hver byggði Eiffelturninn, hvers vegna var hann byggður og hvenær? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6097
Kolbrún Huld Þórarinsdóttir. „Hver byggði Eiffelturninn, hvers vegna var hann byggður og hvenær?“ Vísindavefurinn. 31. júl. 2006. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6097>.