Stutta svarið við spurningunni er nei.
Myndböndin eru falsanir sem ýmist eru gerðar með klippingu og límingu eða að kröftugum örbylgjusendi er komið fyrir undir borðplötunni fyrir neðan baunina. Við vekjum athygli þeirra sem horfa á þessi myndbönd á gólfsíða borðdúknum sem einkennir flest þeirra.En til að rökstyðja svona afgerandi svar þarf að leita upplýsinga um stærðarþrep ýmissa stærða sem koma við þessa sögu.
- Sendistyrkur farsíma er í stærðarþrepinu P0 = 1W. Öldulengdin er í grennd við λ = 30 cm, svo stefnuvirkni er lítil og við gerum ráð fyrir að sendistyrkurinn dreifist jafnt í allar áttir. Þá skulum við gera ráð fyrir að baunin sé í fjarlægðinni R = 2,5 cm frá miðju sendisins.
- Massi maísbaunar er í stærðarþrepinu m = 0,1 g og til einföldunar nálgum við lögun hennar sem tening með kantlengdina l = 0,5 cm. Baunin inniheldur sterkju með rakahlutfallið w ≈ 15% og er hulin sterkri nær rakaþéttri yfirhúð. Við hitun ummyndast sterkjan og baunin "poppar" þegar húðin springur og sterkjan þenst út. Þetta gerist við hitastig í kringum 180°C [1] þar sem gufuþrýstingur vatns er orðinn 10 atm.
- Ísogsdýpt z0 er stærð sem lýsir hvernig geislun dofnar í efni. Stærðin tilgreinir þá dýpt í efninu sem þarf til að deyfa styrkinn niður í e-1 ≈ 0,37 af upphafsstyrk. Fyrir örbylgjuofn, sem vinnur við 2,45GHz er ísogsdýpt í vatni z0 = 1,5 cm [2]. Farsímar vinna við lægri tíðni í grennd við 1GHz þar sem ísogsdýpt í vatni er z0 ≈ 3 cm.
Nú erum við tilbúin að raða þessum stærðum saman og fá upplýsingar um hversu hratt maísbaunin dregur orku úr sendisviði símans.
Varminn Q sem þarf til að hita baunina um ΔT = 160°C er
þar sem Cw og Cs eru varmarýmd fyrir vatn og sterkju. Hér hefur framlagi frá uppgufunarvarma vatns verið sleppt, en það skekkir myndina ekki mikið.
Það tekur tímann t að dæla þessum varma inn í baunina þar sem t er
Jafnvel þó við bíðum af okkur þessar 140 klst "poppar" baunin ekki, því bæði varminn og yfirþrýstingurinn lekur af við svona hæga hitun.
Örbylgjur í örbylgjuofni eru myndaðar í svokallaðri "magnetronu" eða örbylgjuvaka sem skilar allt að 800W. Bylgjunum er skotið í geislahol þar sem þær speglast fram og til baka, og þannig er hægt að gjörnýta orkuinnihald þeirra til hitunar á matvöru í ofninum, þar á meðal til að "poppa" poppkorn.
Líklegast er að farsíma popp-svindlið á myndböndunum sé gert með því að taka magnetronu úr örbylgjuofni og koma henni fyrir undir borðplötunni sem farsíminn og baunin hvíla á. Orkan til upphitunar á bauninni kemur því frá magnetronunni en ekki farsímanum. Á myndböndum á Veraldarvefnum er sýnt hvernig hægt er að fara að þessu.
Við vörum hins vegar við því að lesendur leiki þetta eftir því að þessi leikur er verulega hættulegur heilsu allra sem eru innan nokkurra metra frá óvarinni magnetronunni; geislunin dreifir úr sér til allra átta frá henni. Auk þess þarf vana menn til að fara með rafmagn eins og þarna er sýnt.Geislunin frá örbylgjuvakanum er hins vegar ekki hættuleg þegar hann er á sínum stað í örbylgjuofninum því að þar er hún innilokuð í málmhylki ofnsins. Heimildir: Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvers vegna poppar poppkorn?
- Er hægt að hafa örbylgjuofn í gangi með opnar dyr, og ef svo er, hvað myndi gerast?
- Hvers vegna má ekki setja málmhluti í örbylgjuofn?
- Why we did it...and how ! Fréttamyndband sem segir frá því hvernig eitt myndskeið var gert með stafrænni klippingu.