Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Með því að fara inn í svarthol væri fræðilega séð hægt að fara bæði á annan stað í alheiminum og hugsanlega í annan alheim. Tengingin þarna á milli nefnist þá ormagöng og um þau er líka hægt að lesa í svari við spurningunni Hvernig virka ormagöng? Fræðin um svarthol segja hins vegar einnig að tengingin þarna á milli vari aðeins í örskamma stund, þannig að ekki einu sinni ljósið næði að komast í gegn. Brautin yfir í hugsanlegan annan alheim byggir ennfremur á sérstökum skilyrðum sem vísindamenn álíta að hafi aldrei verið fyrir hendi.
Ekki er hins vegar víst að ferðalag í gegnum ormagöng væri ákjósanlegt. Gríðarlegt þyngdarsvið svarthola mundi nefnilega rífa í sundur allt það efni sem félli inn í það. Sá sem færi inn í svarthol kæmi þess vegna býsna ólíkur sjálfum sér út úr því.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
JGÞ. „Kemur maður inn í aðra veröld ef maður færi í gegnum svartholið?“ Vísindavefurinn, 2. október 2008, sótt 1. apríl 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=49342.
JGÞ. (2008, 2. október). Kemur maður inn í aðra veröld ef maður færi í gegnum svartholið? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=49342
JGÞ. „Kemur maður inn í aðra veröld ef maður færi í gegnum svartholið?“ Vísindavefurinn. 2. okt. 2008. Vefsíða. 1. apr. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=49342>.