Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
ForsíðaHugvísindiMálvísindi: íslenskEr rangt að skrifa skammstafanir án bila á milli punkta, til dæmis þegar maður skrifar t.d. eða eiga að vera bil á milli?
Ekki er haft stafbil milli tveggja skammstafaðra orða nema aftan við skammstöfun sem er tveir eða fleiri stafir og milli tveggja skammstafana sem hvor um sig er sjálfstæð eining.
Samkvæmt þessu er skrifað:
t.d.
a.m.k.
o.fl.
f.Kr.
Því liðir á undan síðasta lið eru aðeins einn stafur. Hins vegar er skrifað:
cand. med.
ef. ft.
það er t.d. a.m.k. þannig hér
o.fl. o.fl
Því annað hvort eru liðir á undan síðasta lið tveir stafir eða fleiri eða skammstafanirnar hvor um sig sjálfstæðar einingar.
Athuga ber, að engan punkt skal setja, þegar fyrri hluti orðs er skammstafaður, til dæmis Rvík (Reykjavík), Khöfn (Kaupmannahöfn). Ekki er settur punktur á eftir skammstöfunum í mælikerfinu (metrakerfinu), til dæmis m (=metri), km (=kílómetri), hl (=hektólítri), né heldur ýmsum erlendum skammstöfunum, ef notaðar eru, til dæmis ca (=hér um bil).
Guðrún Kvaran. „Er rangt að skrifa skammstafanir án bila á milli punkta, til dæmis þegar maður skrifar t.d. eða eiga að vera bil á milli?“ Vísindavefurinn, 2. júní 2004, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4311.
Guðrún Kvaran. (2004, 2. júní). Er rangt að skrifa skammstafanir án bila á milli punkta, til dæmis þegar maður skrifar t.d. eða eiga að vera bil á milli? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4311
Guðrún Kvaran. „Er rangt að skrifa skammstafanir án bila á milli punkta, til dæmis þegar maður skrifar t.d. eða eiga að vera bil á milli?“ Vísindavefurinn. 2. jún. 2004. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4311>.