Mynd af blöðum minnisbókarinnar með mynd af Tönyu frá því fyrir stríð.
Zhenya dó kl. 12:30 í nótt 28. desember 1941. Babushka dó kl. 3, 25. janúar 1942. Leka dó klukkan 5 að morgni 17. mars 1942. Dedya Vasya dó klukkan tvö að nóttu 13. apríl 1942. Dedya Lesa dó klukkan 4 síðdegis 10. maí 1942. Mamma 7:30 f.h. [13. maí] 1942. Öll dóu. Tanya er ein eftir. Heimsstyrjöldin 1939-1945. Innrás í Sovétríkin, bls. 108.Lengi vel var talið að Tanya hefði látist í Leníngrad en nú hefur komið í ljós að hún var flutt úr borginni haustið 1942 ásamt hópi annarra barna. Veikburða líkami hennar þoldi þó ekki afleiðingar umsátursins og hún lést ári síðar vegna þrálátrar blóðkreppusóttar sem hún hafði fengið á meðan á umsátrinu stóð. Minnisbókin fannst síðar og var lögð fram við stríðsglæparéttarhöldin í Nürnberg eftir stríðið. Hana er nú að finna á Söguminjasafni Leníngrads. Vegur lífsins Skæður veturinn reyndist þó líka bjargvættur því fyrir vikið lagði Ladógavatn fyrr en ella. Hægt var að flytja vistir til borgarinnar og borgarbúa á brott, um 300 km leið yfir ísi lagt vatnið og hófust þessir flutningar 20. nóvember 1941. Þessi flutningaleið hlaut nafngiftina „Vegur lífsins“ (r. Doroga zhizni) og áður en ísa leysti 24. apríl 1942 höfðu um 514 þúsund íbúar og 35 þúsund særðir hermenn auk iðnaðartækja verið flutt á brott úr borginni. Þegar mest lét fóru 400 þriggja tonna vörubílar yfir ísinn á dag. Þeir sættu hins vegar stöðugum loft- og stórskotaliðsárásum og oft komst einungis þriðjungur farartækjanna á áfangastað. Þrátt fyrir mikil afföll flutningatækja gerði þetta þó gæfumuninn. Matur barst aðþrengdum borgarbúum og það, ásamt mannfellinum sem orðið hafði og brottflutningi fólks frá borginni, gerð það að verkum að lífið varð bærilegt fyrir þá sem eftir voru. Um sumarið 1942 var birgðum fleytt yfir vatnið á bátum og prömmum en ísleiðin opnaðist aftur 20. desember og þann vetur var einnig lögð 30 km löng lestarlína á ísnum. Ísleiðin yfir Ladógavatn hefði þó dugað skammt ef Sovétmönnum hefði ekki tekist að ná borginni Tikhvin, sem er skammt suðaustan Ladógavatns, úr höndum Þjóðverja 9. desember. Hún var miðstöð samgangna á svæðinu og án hennar gátu Sovétmenn ekki flutt birgðir að vatninu.
Hugrekki umsetinna borgarbúanna vakti heimsathygli og varð táknrænt fyrir andspyrnu sovésku alþýðunnar gegn nasistum. Úthald verjenda Leníngrad varð mikilvægt áróðurstákn og má sérstaklega nefna sjöundu sinfóníu Dimitrís D. Shostakovítsj sem einnig er þekkt sem Leníngrad-sinfónían því hún var að miklu leyti samin í umsetinni borginni árið 1941 og frumflutt þar sumarið eftir. Um þriðjungur borgarbúa lét lífið á meðan á umsátrinu stóð en annar þriðjungur íbúa var fluttur á brott. Nákvæmar tölur um látna eru óljósar en sovésk yfirvöld segja 670 þúsund hafa orðið hungurmorða. Aðrar óháðar rannsóknir telja flestar að 1,1 milljón manna hafi látist í Leníngrad á meðan umsátrinu stóð. Til samanburðar má nefna að samanlagt mannfall Breta og Bandaríkjamanna var tæplega 800 þúsund manns í öllu stríðinu. Sovétmönnum tekst að aflétta umsátrinu Fram til vetursins 1942-43 átti Rauði herinn undir högg að sækja gegn herjum Þjóðverja og bandamanna þeirra. Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna, lét því þarfir hersins ganga fyrir og nýtti flutningatæki og flugvélar í hans þágu. Eftir að ísleiðin um Ladógavatn opnaðist voru mestu hörmungar íbúanna afstaðnar og þegar tókst að opna landleiðina til þeirra í janúar 1943 þótti öruggt að nægar vistir næðu til borgarinnar til að tryggja að hún héldi velli. Eftir það náðu Sovétmenn frumkvæðinu á vígstöðvunum en einbeittu sér meira að því að vinna hernaðarlega mikilvægari landsvæði og brjóta á bak aftur þýska herinn. Rauði herinn reyndi þó allan tímann ítrekað að aflétta umsátrinu um borgina en það tókst ekki fyrr en með aðgerð Neista sem hófst 12. janúar 1943. Þá sóttu hersafnaðir Sovétmanna til móts við hver annan meðfram suðurströnd Ladógavatns og tókst að rjúfa kirfilega víggirtar víglínur Þjóðverja. Herir Sovétmanna náðu saman 18. janúar og opnuðu þannig landleiðina til borgarinnar. Umsátrinu var þó ekki fyllilega aflétt því landræman til Leníngrad var mjó og birgðaleiðin til borgarinnar þurfti að hlykkjast um víglínuna sjálfa. Íbúar Leníngrad sátu enn undir stöðugum stórskotaliðsárásum Þjóðverja og það var ekki fyrr en ári síðar, í janúar 1944, sem Sovétmönnum tókst að hrekja Þjóðverja endanlega frá borgarmörkunum og aflétta umsátrinu. Eftir stríðið var Leníngrad fyrst borga til að hljóta sovésku heiðursviðurkenninguna Hetjuborg fyrir afrek íbúa hennar í stríðinu. Ákvarðanir Stalíns Margir fræðimenn telja að Stalín hafi vísvitandi tafið fyrir björgun borgarinnar og komið í veg fyrir að íbúar hennar væru fluttir á brott. Hann hafi í raun verið feginn því að andstæðingarnir dræpu intelligentsiu (menntastétt) borgarinnar, sem var honum óþægur lár í þúfu. Margir íbúar Leníngrad sem komust á brott voru fluttir til fjarlægra hluta Sovétríkjanna og áttu aldrei afturkvæmt. Því verður ekki neitað að brottflutningur borgarbúa hófst allt of seint, litlar sem engar tilraunir voru gerðar til að flytja matvæli loftleiðis og allar frásagnir af hörmungum borgarinnar voru þaggaðar niður. Ábyrgðin er að einhverju leyti einræðisherrans en hann á líka heiðurinn að því að sovéskum yfirvöldum tókst að lokum að koma birgðum til umsetinnar borgarinnar, flytja íbúa á brott, efla baráttuandann og að lokum bjarga Leníngrad. Vissulega hefði hann getað ákveðið að koma borgarbúum til hjálpar fyrr en hann gerði en Stalín verður víst seint sakaður um góðmennsku. Dapurlegur lokaþáttur umsátursins um Leníngrad voru hreinsanir Stalíns í æðstu stjórn borgarinnar og Kommúnistaflokksins þar um 1950. Þeir höfðu notið töluverðs frjálsræðis við stjórnun borgarinnar á meðan hún var umsetin og eftir stríðið var þeim fagnað sem hetjum. Hinn aldraði einræðisherra leit þó á þá sem ógn og eftir að Andrei Zhdanov, valdamesti fulltrúi þeirra og næstur Stalín að völdum, lést lét Stalín til skarar skríða. Á meðal fórnarlambanna voru A. A. Kuznetsov, ritari miðstjórnar Kommúnistaflokksins, N. A. Voznesensky, varaformaður ráðherraráðsins, og M. I. Rodionov, forsætisráðherra Rússlands. Þetta voru valdamestu einstaklingar Sovétríkjanna sem einræðisherrann lét ryðja úr vegi í þessum síðustu hreinsunum sínum. Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað vitið þið um innrásina í Stalíngrad? eftir Skúla Sæland
- Hvaða lönd hertók Hitler og í hvaða röð? eftir Lilju Kristinsdóttur
- Hvernig töpuðu Þjóðverjar seinni heimsstyrjöldinni? eftir Skúla Sæland
- Hvað var Gestapo og hvað gerðu menn þar? eftir Skúla Sæland
- Barber, John: „Stalin and the betrayal of Leningrad.“ Birt á vefsíðu BBC History 1. ágúst 2001. Sótt 21. júní 2005.
- Heimsstyrjöldin 1939-1945. Innrás í Sovétríkin. Nicholas Bethell og ritstjóri Time-Life Bóka. Ritstjóri íslensku útgáfunnar: Örnólfur Thorlacius. Almenna bókafélagið, Spáni, 1980.
- Wikipedia, the free encyclopedia. Eftirfarandi greinar sóttar 21. júní 2005: „Road of Life“, „Saint Petersburg“, „Siege of Leningrad“, „Tanya Savicheva“ og kort á „NW Russia“ sótt 25. júlí 2005.
- Cartography - Indiana State University. Sótt 25. júlí 2005.
Hvernig kom Leníngrad við sögu í seinni heimsstyrjöldinni og hve margir bjuggu þar fyrir stríð?