Við kveikjum einu kerti á. Hans koma nálgast fer sem fyrstu jól í jötu lá og Jesúbarnið er. Við kveikjum tveimur kertum á og komu bíðum hans, því Drottinn sjálfur soninn þá mun senda‘ í líking manns. Við kveikjum þremur kertum á, því konungs beðið er, þótt Jesús sjálfur jötu og strá á jólum kysi sér. Við kveikjum fjórum kertum á. Brátt kemur gesturinn, og allar þjóðir þurfa að sjá, að það er frelsarinn.En um aðventukertin er líka til þýsk saga, er ber heitið „Fjögur kerti“. Höfundur hennar er ókunnur en þýðinguna gerði Pétur Björgvin Þorsteinsson. Sagan er á þessa leið:
Það var búið að kveikja á öllum fjórum kertunum á aðventukransinum. Í kringum þau ríkti þögn. Ef einhver hefði verið nálægur þá hefði hann heyrt kertin tala saman. Fyrsta kertið andvarpaði og sagði: „Ég er friðarkerti. Ljós mitt lýsir en fólkið býr ekki í friði hvert við annað. Fólkinu er alveg sama um mig!“ Ljósið á fyrsta kertinu varð minna og minna þangað til það slokknaði alveg. Annað kertið flökti og sagði: „Ég heiti trú. En ég er alveg óþarfi. Fólkinu er alveg sama um Guð, það vill ekkert af honum vita. Það hefur engan tilgang að það sé ljós á mér.“ Krafturinn í kertinu sem nefndi sig trú var þrotinn. Lítill trekkur dugði til. Ljósið slokknaði. Með lágri, dapurri röddu tók þriðja kertið til máls: „Ég heiti kærleikur. En ég hef enga orku til þess að láta ljós mitt skína. Fólkið er búið að ýta mér til hliðar. Það sér bara sig sjálft og ekki náungann sem þarf á kærleikanum að halda.“ Að þessum orðum mæltum slokknaði á þriðja kertinu. Lítið barn kom inn í herbergið þar sem aðventukransinn stóð á borðinu. Með tárin í augunum sagði það: „Mér finnst ekki gaman þegar það er slökkt á ykkur.“ Þá svaraði fjórða kertið: „Ekki vera hrætt, kæra barn. Meðan ljós er á mér getum við kveikt á hinum kertunum. Ég heiti von.“ Það var gleðisvipur á andliti barnsins þegar það notaði ljósið af vonarkertinu til þess að kveikja á kærleikskertinu, trúarkertinu og friðarkertinu. Að því loknu sagði barnið eins og við sjálft sig: „Nú geta jólin komið í alvöru.“Meginhluti þessa svars birtist sem hugvekja í Morgunblaðinu sunnudaginn 30. nóvember 2003 undir heitinu „Fjögur kerti“. Áður hafði svipuð hugvekja birst í blaðinu sunnudaginn 2. desember 2001 undir heitinu „Aðventa“. Hægt er að lesa meira um aðventukransinn á vefsíðu Evangelical Lutheran Church in America. Skoðið einnig önnur svör á Vísindavefnum um aðventu og jól, til dæmis:
- Af hverju notum við grenitré fyrir jólatré? eftir Sigurð Ægisson
- Hvers vegna er aðalveislan um jólin og pakkar opnaðir 24. desember hjá okkur, en 25. desember víða annars staðar? eftir Einar Sigurbjörnsson
- Er ekki sagt að Jesú hafi fæðst í júlí, af hverju höldum við þá jólin í desember? eftir Sigurjón Árna Eyjólfsson
- Hvað er myrra sem vitringarnir komu með? eftir Jón Gunnar Þorsteinsson
- Hvenær er fyrsti sunnudagur í aðventu ? eftir ÖJ
- Sigurður Ægisson.
- St. Francis’ Church.