Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað var Trója?

Jóhann Bjarki Arnarsson Hall

Trója var borg til forna í Litlu-Asíu, þar sem nú er Tyrkland. Hún er þekktust af Trójustríðinu sem meðal annars er lýst í Ilíonskviðu. Lengi vel var talið að Ilíonskviðu Hómers væri skáldskapur, þangað til að Þjóðverjinn Heinrich Schliemann gróf upp borgina árið 1873. Þar fundust merki um eyðileggingu borgarinnar af völdum árásahers og talið er að sú árás hafi átt sér stað um 1220 f. Kr.

Tyrkir hafa endurgert Trójuhestinn eins og þeir ímynda sér að hann hafi litið út.

Ein af vinsælustu sögnunum um Tróju er af Trójuhestinum sem Grikkir áttu að hafa smíðað. Hann var risastór og holur að innan. Grískir hermenn földu sig í honum og skildu eftir við borgarhliðið. Trójumenn dróu hestinn inn fyrir borgarmúrana og í skjóli nætur laumuðust grísku hermennirnir út úr hestinum og náðu borginni á sitt vald.

Heimildir og mynd:

Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.

Höfundur

BA-nemi í stjórnmálafræði og áður nemandi í Engjaskóla

Útgáfudagur

14.11.2003

Spyrjandi

Arnar Orri Eyjólfsson, f. 1986

Tilvísun

Jóhann Bjarki Arnarsson Hall. „Hvað var Trója?“ Vísindavefurinn, 14. nóvember 2003, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3860.

Jóhann Bjarki Arnarsson Hall. (2003, 14. nóvember). Hvað var Trója? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3860

Jóhann Bjarki Arnarsson Hall. „Hvað var Trója?“ Vísindavefurinn. 14. nóv. 2003. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3860>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað var Trója?
Trója var borg til forna í Litlu-Asíu, þar sem nú er Tyrkland. Hún er þekktust af Trójustríðinu sem meðal annars er lýst í Ilíonskviðu. Lengi vel var talið að Ilíonskviðu Hómers væri skáldskapur, þangað til að Þjóðverjinn Heinrich Schliemann gróf upp borgina árið 1873. Þar fundust merki um eyðileggingu borgarinnar af völdum árásahers og talið er að sú árás hafi átt sér stað um 1220 f. Kr.

Tyrkir hafa endurgert Trójuhestinn eins og þeir ímynda sér að hann hafi litið út.

Ein af vinsælustu sögnunum um Tróju er af Trójuhestinum sem Grikkir áttu að hafa smíðað. Hann var risastór og holur að innan. Grískir hermenn földu sig í honum og skildu eftir við borgarhliðið. Trójumenn dróu hestinn inn fyrir borgarmúrana og í skjóli nætur laumuðust grísku hermennirnir út úr hestinum og náðu borginni á sitt vald.

Heimildir og mynd:

Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna....