Hvernig losna geimfarar við úrgang sinn? Er það satt að hlandið harðni út í geimnum?Eftirfarandi svar er byggt á heimildum um aðbúnað geimfara í bandarísku geimskutlunum en gefur góða hugmynd um aðbúnað geimfara almennt. Þess má geta að spurningar um þessa hluti eru afar algengar á vefsetri Bandarísku geimrannsóknastofnunarinnar NASA. Í geimskutlunni er engin sturta, enda væri slíkt varla hægt vegna þyngdarleysisins; hætt við að erfitt yrði að hafa stjórn á vatninu. Þess í stað þvo geimfarar sér með blautum svömpum. Talsvert magn af vatni er til staðar, því það verður til sem aukaafurð í efnarafölum sem notaðir eru til rafmagnsframleiðslu um borð. Til að hindra að vatnsdropar fljóti um í þyngdarleysinu, sem gæti verið hættulegt áhöfn og tækjum, er kerfi um borð sem blæs úrgangsvatni saman á einn stað þar sem því er safnað saman í plastpoka. Eitt klósett er í geimskutlunni sem notar blástur til að leiða úrganginn í gegnum kerfið. Úrgangsvatni er dælt út í geiminn en annað er innsiglað í plastpoka og fjarlægt eftir heimkomu. Loftið sem fer í gegnum kerfið er hreinsað og því dælt aftur inn í farþegarýmið. Spyrjandi heldur líklega að þvag geimfaranna frjósi þegar það kemur út í geiminn af því að þar er svo kalt, en þetta er misskilningur. Í geimnum er líka lofttæmi, það er að segja hverfandi þrýstingur, þannig að allt efni er þar í gasham, það litla sem það er. Mikilvægt er að fyllsta hreinlætis sé gætt um borð því að komið hefur í ljós að vissar bakteríutegundir fjölga sér óvenjuhratt í þyngdarleysinu. Því er allur úrgangur, óhrein föt og áhöld innsigluð í plastpoka og skutlan þrifin hátt og lágt reglulega meðan á flugi stendur. Þessar upplýsingar fengust á þessum upplýsingasíðum Bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA): http://www.nasa.gov/qanda/nasa_space.html#hygiene og http://www.jsc.nasa.gov/pao/factsheets/factsheets/9508001.html.
Hvernig fara geimfarar í sturtu?
Útgáfudagur
13.4.2000
Spyrjandi
N.N.
Tilvísun
Tryggvi Þorgeirsson. „Hvernig fara geimfarar í sturtu?“ Vísindavefurinn, 13. apríl 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=338.
Tryggvi Þorgeirsson. (2000, 13. apríl). Hvernig fara geimfarar í sturtu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=338
Tryggvi Þorgeirsson. „Hvernig fara geimfarar í sturtu?“ Vísindavefurinn. 13. apr. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=338>.