Upphaflega hljómaði spurningin svona:
Hver er vinsælasti mánuðurinn til að fæðast í?
Upphaflegu spurninguna er hægt að túlka á tvo vegu; annars vegar í hvaða mánuði sé eftirsóttast að fæðast og hins vegar í hvaða mánuði sé algengast að fæðast. Ekki verður lagt mat á fyrri túlkunina hér en síðari túlkuninni v...
Langflestir tvíburar eru tvíeggja en því miður hefur ekki tekist að afla upplýsinga um hvernig hlutfallið á milli eineggja og tvíeggja tvíbura er á Íslandi. Hins vegar má nálgast upplýsingar um fjölburafæðingar á heimasíðu Hagstofu Íslands, þar með talið tvíburafæðingar, en ekki er tilgreint hversu mörg egg koma v...
Svarið við þessari spurningu er nei. Kennitölurnar klárast ekki, nema fæðingar á Íslandi verða fleiri en 79 á dag.
Kennitala er 10 stafa tala. Fyrstu sex tölurnar eru búnar til úr fæðingardeginum, það er dagur, mánuður og ár (stytt í tvo tölustafi.) Næst kemur raðtala sem er tveir tölustafir, úthlutað frá og me...
Það er erfitt að sýna fram á slíkt, þar sem einungis mætti horfa til eðlilegra fæðinga og útiloka fæðingar sem verða til vegna inngripa lækna og ljósmæðra, til dæmis þegar flýtt er fyrir fæðingu með svo kölluðum gangsetningum, gerðir keisaraskurðir og svo framvegis.
Flest bendir til þess að fæðingar sem hefjast...
Meðaltíðni fæðinga og dauðsfalla er mismunandi ár hvert. Í þessu svari er miðað við tölur frá 2017. Til samanburðar má benda á svar TÞ frá 22.6.2000 við spurningunni Hvað búa margir í heiminum? en þar er að finna samskonar tölur fyrir árið 2000. Á heimasíðu Bandarísku manntalsskrifstofunnar (US Census Bureau) er a...
Því miður tókst ekki að hafa upp á tölum um hversu algengt það er að konur hafi hægðir í fæðingu. En það er býsna algengt að konur missi svolítið þvag eða hægðir á öðru stigi fæðingar þegar rembingshríðir þrýsta barninu út um leggöngin, enda þrýstingurinn mjög mikill.
Konur fá reyndar yfirleitt endaþarmsstíl í...
Erfitt er að nálgast upplýsingar um hve margir lifandi einstaklingar á Íslandi í dag eru þríburar. Hins vegar er áhugavert að skoða hve margir þríburar hafa fæðst hér á landi á síðustu áratugum og hversu stórt hlutfall þeir mynda af öllum sem fæðst hafa á landinu á sama tímabili.
Á vef Hagstofu Íslands má nálga...
Sé litið til síðustu 10 ára hefur ekki dregið úr árlegum heildarfjölda fæðinga. Á Íslandi hefur fjöldi fæðinga á ævi hverrar konu samt aldrei verið minni en síðasta áratuginn, en á þessu tímabili eignuðust konur að meðaltali um 1,9-2,1 barn á lífsleiðinni.
Til að skilja betur hvað býr að baki fæðingartíðni er ...
Þegar þetta svar er skrifað (22.6.2000) búa um 6.076.100.000 manns í heiminum. Eins og sjá má á töflunni hér að neðan bætist hratt við þá tölu og má finna uppfærðar upplýsingar um fólksfjölda í heiminum hér.
Tölur sem þessar þarf þó að taka með fyrirvara vegna þess að nákvæmur fólksfjöldi er ekki þekktur í sum...
Hagstofa Íslands heldur utan um upplýsingar um mannfjölda á Íslandi, þar á meðal hversu margir fæðast og deyja á hverju ári.
Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar fæddust alls 4.625 börn á Íslandi árið 1992, 2.387 drengir og 2.238 stúlkur. Af öllum þessum börnum voru 142 tvíburar og 12 þríburar.
Áhugasömum er ...
Að meðaltali fæðast rúmlega 4 börn á sekúndu einhvers staðar í heiminum. Mestar líkur eru á að þessi börn séu í Asíu þar sem meira en þriðjungur allra barna fæðist þar. Á sama tíma deyja að meðaltali tæplega 2 manneskjur. Það þýðir að á hverjum sólarhring fjölgar mannkyninu um rúmlega 200.000.
Til samanburða...
Já, að vera 11 ára móðir mundi teljast mjög ungt. Meðalaldur kvenna þegar þær eignast sitt fyrsta barn er 26 ár, ef miðað er við tölur frá árinu 2005. Stúlkur verða venjulega kynþroska á aldrinum 9-18 ára, en að meðaltali gerist það ekki fyrr en við 13 ára aldurinn eins og fram kemur í svari Vísindavefsins við spu...
Tímabilið eftir fæðingu er tími aukinnar hættu á þunglyndi og oflæti hjá konum. Konur sem leggjast inn á spítala vegna geðsjúkdóma eftir fæðingu eru langoftast annaðhvort með þunglyndi eða oflæti.
Þunglyndi og oflæti á meðgöngu og eftir fæðingu lýsir sér svipað og hjá óþunguðum konum. Þær konur sem eru í mestr...
Á vef Hagstofunnar má sjá að árið 2009 fæddust 5.026 lifandi börn á Íslandi og er það fjölmennasti árgangur Íslandssögunnar, að minnsta kosti til þessa. Næstflest fæddust árið 1960 eða 4.916.
Nýfætt barn.
Talsverðar sveiflur eru í barnsfæðingum en þeim hefur heldur fækkað undanfarin ár. Árin 2008-2010 fæddu...
Já, það hafa fæðst eineggja þríburar og jafnvel eineggja fjórburar og fimmburar, en slíkt er afar sjaldgæft.
Þríburar geta ýmist verið eineggja, tvíeggja eða þríeggja. Þegar frjóvgað egg klofnar í tvennt verða til eineggja tvíburar en ef önnur dótturfruman klofnar svo aftur í tvennt verða til eineggja þríburar...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!