Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Samkvæmt könnun sem gerð var í mars og apríl 1999 var tölva á tveim þriðjuhlutum heimila á Íslandi. Þar sem tölvueign fer stöðugt vaxandi má ætla að þetta hlutfall sé hærra núna. Auk þess hafa margir aðgang að tölvu á vinnustað þótt þeir séu ekki með tölvu heima hjá sér.
Niðurstöður sömu könnunar sýndu að 82,3% Íslendinga á aldrinum 16-75 ára höfðu aðgang að internetinu; 58,7% heima hjá sér, 41,9% í vinnunni, 14,0% í skóla og 0,5% annars staðar. Ætla má að meirihluti þessa hóps hafi aðgang að tölvupósti.
Heimildir og nánari upplýsingar:
Vefur Stjórnarráðsins