Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Vaninn er að skipta indóevrópskum málum í tvo yfirflokka, svokölluð kentum-mál og satem-mál, en þessum flokkum aftur í alls ellefu undirflokka. Kentum og satem draga nafn af því hvort orðið 'hundrað' hafði lokhljóðið c (k) í framstöðu, sbr. latínu centum 'hundrað' eða önghljóðið s, sbr. indversku satám 'hundrað'.
Til kentum-mála teljast germönsk mál, keltnesk mál, ítalísk mál, gríska, anatólísk mál og tokkaríska.
Til satem mála teljast: slavnesk mál, baltnesk mál, albanska, armenska, indó-írönsk mál.
Sjá að öðru leyti svar sama höfundar við spurningunni Hvaða mál eru germönsk, rómönsk og slavnesk?
Guðrún Kvaran. „Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?“ Vísindavefurinn, 29. september 2000, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=950.
Guðrún Kvaran. (2000, 29. september). Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=950
Guðrún Kvaran. „Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?“ Vísindavefurinn. 29. sep. 2000. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=950>.