Sólin Sólin Rís 07:56 • sest 19:21 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:54 • Sest 08:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:39 • Síðdegis: 18:01 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:57 • Síðdegis: 24:03 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða strik er átt við þegar menn ná sér á strik?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið að ná sér á strik merkir ‘takast eitthvað eftir að áður hafði illa gengið’. Það er þekkt frá fyrri hluta 20. aldar. Strik merkir þarna ‘stefna’. Hugsanlegt er talið að það tengist því þegar menn sigldu eftir áttavita og ákveðinni stefnu var náð.

Í Mergi málsins eftir Jón G. Friðjónsson (2006:846) er gefin sú skýring að strik merki hér ‘ferð, gangur’ og að líkingin sé af því dregin að menn hafi komist vel af stað, séu komnir á fullan skrið.

Heimildir og mynd:

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Að ná sér á strik - hvaða strik og nákvæmlega hvar er það?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

26.2.2025

Spyrjandi

Örn

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða strik er átt við þegar menn ná sér á strik?“ Vísindavefurinn, 26. febrúar 2025, sótt 12. mars 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87289.

Guðrún Kvaran. (2025, 26. febrúar). Hvaða strik er átt við þegar menn ná sér á strik? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87289

Guðrún Kvaran. „Hvaða strik er átt við þegar menn ná sér á strik?“ Vísindavefurinn. 26. feb. 2025. Vefsíða. 12. mar. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87289>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...