Sólin Sólin Rís 07:56 • sest 19:21 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:54 • Sest 08:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:39 • Síðdegis: 18:01 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:57 • Síðdegis: 24:03 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er uppruni orðsins trúður?

Guðrún Kvaran

Elsta dæmi í ritmálssafn Orðabókar Háskólans um orðið trúður er í þýðingu á riti eftir Xenófón. Ritið heitir í þýðingunni Austurför Kýrosar og var gefið út 1867. Þýðendur voru Halldór Kr. Friðriksson og Gísli Magnússon.

Ásgeir Blöndal Magnússon segir í bók sinni Íslensk orðsifjabók (1989:1064) að uppruni orðsins trúður sé óljós. Það sé tæplega norrænt og líklega tökuorð úr fornensku trûð. Í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndal (1920–1924) er trúður til dæmis þýtt með orðinum ‘gøler’ og ‘jonglør’ og á danskan því ekki orð sambærlegt því íslenska.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.2.2025

Spyrjandi

Elías Halldór Ágústsson, Helga Bára

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins trúður?“ Vísindavefurinn, 21. febrúar 2025, sótt 12. mars 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87139.

Guðrún Kvaran. (2025, 21. febrúar). Hver er uppruni orðsins trúður? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87139

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins trúður?“ Vísindavefurinn. 21. feb. 2025. Vefsíða. 12. mar. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87139>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...