Sólin Sólin Rís 07:52 • sest 18:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:56 • Sest 17:43 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:59 • Síðdegis: 20:11 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:51 • Síðdegis: 14:13 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er ljóður þegar talað er um að ljóður sé á ráði?

Guðrún Kvaran

Nafnorðið ljóður merkir ‘galli, annmarki’ og virðist ekki gamalt í málinu. Aðeins 12 dæmi eru í ritmálssafni Orðabókar Háskólans og eru öll nema eitt um að eitthvað sé ljóður á ráði einhvers. Elst dæmanna er úr ritgerðasafni Árna Pálssonar, Á víð og dreif, sem gefið var út 1947:

Honum var að vísu ekki virt það til lítilmennsku, en heldur þótti þetta ljóður á ráði hans.

Í Íslenskri orðsifjabók telur Ásgeir Blöndal Magnússon (1989:568) orðið líklega skylt nýnorsku ljor ‘rifa eða sprunga í tré’ og ljoder, ljöder, liuædær ‘skemmd eða sár í tré (sem er að gróa)’ í sænskum mállýskum. Sú skýring er sennileg.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

10.9.2024

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er ljóður þegar talað er um að ljóður sé á ráði?“ Vísindavefurinn, 10. september 2024, sótt 6. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=86917.

Guðrún Kvaran. (2024, 10. september). Hvað er ljóður þegar talað er um að ljóður sé á ráði? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=86917

Guðrún Kvaran. „Hvað er ljóður þegar talað er um að ljóður sé á ráði?“ Vísindavefurinn. 10. sep. 2024. Vefsíða. 6. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=86917>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...