Sólin Sólin Rís 08:22 • sest 18:03 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:46 • Sest 06:29 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:12 • Síðdegis: 17:29 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:25 • Síðdegis: 23:46 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða medister er í medisterpylsu?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Hvað er medisterpylsa og hvað merkir þetta medister forskeyti?

Orðið medisterpylsa er fengið að láni úr dönsku medisterpølse. Fyrri liður danska orðsins medister, med-, er fenginn úr miðlágþýsku met, sem merkir ‘svínakjöt’, og ister er úr gamalli dönsku í merkingunni ‘innyflafita’ einkum úr svínum (sama orð og ístra í íslensku).

Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr blaðinu Fjallkonunni frá 1897:

Matvæli, reykt svo sem: […] Medister-pylsur.

Heimildir:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.8.2024

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða medister er í medisterpylsu?“ Vísindavefurinn, 21. ágúst 2024, sótt 16. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=86757.

Guðrún Kvaran. (2024, 21. ágúst). Hvaða medister er í medisterpylsu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=86757

Guðrún Kvaran. „Hvaða medister er í medisterpylsu?“ Vísindavefurinn. 21. ágú. 2024. Vefsíða. 16. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=86757>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...