Sólin Sólin Rís 06:31 • sest 20:17 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 14:22 • Sest 19:48 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 09:01 • Síðdegis: 21:15 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:54 • Síðdegis: 15:14 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju er orðið mansal skrifað með einu n-i, en ekki tveimur eins og t.d. mannekla?

Guðrún Kvaran

Orðið mansal er sett saman úr man ‘ófrjáls manneskja, ambátt, mær’ og nafnorðinu sal af sögninni selja. Mansal merkir þá ‘þrælasala’.

Mannekla er hins vegar sett saman af nafnorðunum maður og ekla ‘vöntun, skortur’ og merkir ‘skortur á mönnum’.

Mansal merkir þrælasala en mannekla er skortur á mönnum.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

8.7.2024

Spyrjandi

Ásta Lóa Eggertsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju er orðið mansal skrifað með einu n-i, en ekki tveimur eins og t.d. mannekla?“ Vísindavefurinn, 8. júlí 2024, sótt 8. september 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=86001.

Guðrún Kvaran. (2024, 8. júlí). Af hverju er orðið mansal skrifað með einu n-i, en ekki tveimur eins og t.d. mannekla? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=86001

Guðrún Kvaran. „Af hverju er orðið mansal skrifað með einu n-i, en ekki tveimur eins og t.d. mannekla?“ Vísindavefurinn. 8. júl. 2024. Vefsíða. 8. sep. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=86001>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...