Sólin Sólin Rís 06:31 • sest 20:17 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 14:22 • Sest 19:48 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 09:01 • Síðdegis: 21:15 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:54 • Síðdegis: 15:14 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Hver er uppruni orðsins „bull“ í merkingunni þvæla eða vitleysa?

Nafnorðið bull ‘suða, suðuhljóð; þvættingur’ er leitt af sögninni bulla ‘sjóða, vella; þvaðra, rugla’. Samkvæmt Ritmálssafni Orðabókar Háskólans þekkist nafnorðið í málinu að minnsta kosti frá 17. öld.

Í skyldum málum má samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:92) nefna færeysku sögnina bulla og nafnorðið bull í sömu merkingu og nýnorsku bulla, buldra ‘vella, sulla; masa’.

Heimild og mynd:
  • Ásgeir Blöndal Magnússon 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík.
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. (Sótt 27. 12. 2023).
  • PickPik.com. (Sótt 10. 1. 2024).

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

17.7.2024

Spyrjandi

Sigurður

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu?“ Vísindavefurinn, 17. júlí 2024, sótt 8. september 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=85833.

Guðrún Kvaran. (2024, 17. júlí). Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=85833

Guðrún Kvaran. „Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu?“ Vísindavefurinn. 17. júl. 2024. Vefsíða. 8. sep. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=85833>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...