Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík
Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík
LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Getur verið að orðið klósett sé komið af orðinu closed? Hér áður fyrr voru snerlar á hurðum með þessu orði.

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið klósett er talið tökuorð úr dönsku, kloset. Þangað er orðið komið úr ensku, sbr. water-closet í sömu merkingu. Að baki liggur fornfranskt orð clos með smækkunarendingu, þ.e. closet, sem aftur á rætur að rekja til latínu clausus 'lokaður'. Það er því rétt að klósett og enska closed eru skyld orð.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

17.8.2000

Spyrjandi

Magnús Þórðarson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Getur verið að orðið klósett sé komið af orðinu closed? Hér áður fyrr voru snerlar á hurðum með þessu orði..“ Vísindavefurinn, 17. ágúst 2000, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=821.

Guðrún Kvaran. (2000, 17. ágúst). Getur verið að orðið klósett sé komið af orðinu closed? Hér áður fyrr voru snerlar á hurðum með þessu orði.. Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=821

Guðrún Kvaran. „Getur verið að orðið klósett sé komið af orðinu closed? Hér áður fyrr voru snerlar á hurðum með þessu orði..“ Vísindavefurinn. 17. ágú. 2000. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=821>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Getur verið að orðið klósett sé komið af orðinu closed? Hér áður fyrr voru snerlar á hurðum með þessu orði.
Orðið klósett er talið tökuorð úr dönsku, kloset. Þangað er orðið komið úr ensku, sbr. water-closet í sömu merkingu. Að baki liggur fornfranskt orð clos með smækkunarendingu, þ.e. closet, sem aftur á rætur að rekja til latínu clausus 'lokaður'. Það er því rétt að klósett og enska closed eru skyld orð....