Ég er með spurningu, er búinn að leigja timburhús í 5 ár og búið að leka mikið vatn niður loftin og timbrið farið að gliðna í sundur og í 4 ár gerði eigandinn ekkert í þessu. Hef ég einhvern rétt sem leigjandi að fá eitthvað af leigunni til baka.Engin sérstök ákvæði um afslætti vegna lélegs viðhalds er að finna í Húsaleigulögum þó samningsfrelsi leyfi aðilum auðvitað að semja um slíkt sín á milli. Einnig leggur löggjafinn skyldu á herðar leigusala í 19. gr. um að annast viðhald eignarinnar en sú skylda tekur til alls sem ekki telst smálegt. Leki í timburhúsi myndi því að öllu jöfnu teljast á ábyrgð leigusala. Í 20. grein laganna er tekið fram að hafi leigjandi tilkynnt leigusala um galla á húsnæðinu, en leigusalinn ekkert aðhafst í tvo mánuði, þá geti leigjandinn tekið verkið í sínar hendur. Kostnaður vegna framkvæmda kæmi þá til frádráttar hinni umsömdu leiguupphæð. Það er afar mikilvægt að leigjandi tilkynni leigusala um þær úrbætur sem hann telur þörf á, ef slíkt er ekki gert getur leigusali borið fyrir sig grandleysi. Hafi leigjandi búið í íbúðinni í mörg ár eftir að hafa tilkynnt leigusalanum um galla, eru litlar líkur á endurgreiðslu leigunnar. Til þess þyrfti að færa sönnur á að grundvöllur skaðabótaábyrgðar væri til staðar, það er að háttsemi leigusalans væri saknæm og ólögmæt, auk þess að sýna fram á tjónið sé sennileg afleiðing hegðunar leigusalans sem raski hagsmunum sem verndaðir séu af skaðabótareglunni. Þetta fer svo allt eftir aðstæðum hverju sinni, það er, leigusamningi, byggingarreglugerðum, teikningum hússins, samskiptum aðilanna og ástandi íbúðarinnar. Heimildir og mynd:
- Dómur í máli nr. 829/2017. Hæstiréttur. (Sótt 15.06.2020).
- Húsaleigulög. Alþingi. (Sótt 15.06.2020).
- Infrogmation of New Orleans. Moldy Bedroom. Sótt 15.06.2020 af Flickr. CC BY 2.0.