Hvert er viðmiðið við að teljast eldri borgari?„Eldri borgari“ er í sjálfu sér teygjanlegt hugtak. Almennt er litið svo á að sá sem hefur lokið föstu starfi og er kominn á eftirlaun sé eldri borgari. Á Íslandi er formlegur eftirlaunaaldur þegar fólk verður 67 ára, en þá hefur það skýlausan rétt til að fá mánaðarlegar greiðslur úr almannatryggingum sem kallast í lögum „ellilífeyrir“ og er í raun almenn eftirlaun eftir fullan starfsaldur í að minnsta kosti 40 ár. Ef fólk kýs að hefja töku ellilífeyris á þessum tímamótum, þá ber því jafnframt að hefja reglulega töku úr sameign sinni í lífeyrissjóðum. Síðan eru frávik frá þessu aldursmiði, 67 ára lífaldri. Lítum aðeins á frávikin: 60 ára Eftirlaunaréttur sjómanna hefst við 60 ára aldurinn. Þá geta þeir fengið fulla greiðslu frá almannatryggingum. Þegar fólk verður sextugt getur það almennt hafið mánaðarlega útgreiðslu reglulegra eftirlauna úr séreign sinni í lífeyrissjóðum. 60 ára getur fólk gerst félagi í einhverju af þeim 53 félögum eldri borgara sem starfrækt eru nánast í hverju sveitarfélagi landsins. LEB – Landssamband eldri borgara er síðan heildarsamtök þessara félaga. Á vefsíðu LEB www.leb.is er til dæmis að finna skrá yfir öll aðildarfélögin. Strangt til tekið gætu þrjár kynslóðir sömu fjölskyldu verið í félagi eldri borgara. Þeir yngstu kannski 60 ára, foreldrar þeirra kannski 80 ára og afar og ömmur þeirra yngstu kannski 100 ára. Þrjár ólíkar kynslóðir, allt „eldri borgarar“!

Eldri borgarar geta verið af fleiri en einni kynslóð eins og til dæmis mæðginin Elísabet 2. og Karl Bretaprins. Hvorugt þeirra er þó komið á eftirlaun.
- Fyrsta æviskeiðið er bernskan og skólaárin.
- Annað æviskeiðið er þegar fólk er komið á vinnumarkað, eignast sitt eigið heimili og kemur sér fyrir í lífinu.
- Þriðja æviskeiðið er eftirlaunaaldurinn meðan fólk er við góða eða sæmilega heilsu, getur að mestu séð um sig sjálft og tekið þátt í lífinu af þónokkrum þrótti.
- Fjórða æviskeiðið er þegar fólk er orðið máttfarið og heilsulítið og stutt er í endalokin. Þetta fólk er gjarnan komið á hjúkrunarheimili.
- U3AThe News. (Sótt 13.5.2020).