Sólin Sólin Rís 10:20 • sest 16:07 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:27 • Sest 15:40 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:11 • Síðdegis: 23:50 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:43 • Síðdegis: 17:39 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur orðið temmilegt?

Guðrún Kvaran

Hver er uppruni orðsins temmilegt? Má skilja sem svo að ef það er borið saman við orðið glæsilegt, þá sé hægt að segja að eitthvað sé temmt, svona eins og eitthvað er glæst?

Spurningin í fullri lengd var svona:
Hver er uppruni orðsins temmilegt? Er hægt að segja að eitthvað sé temmt, svona eins og eitthvað er glæst?

Orðið temmilegur er tökuorð úr dönsku temmelig sem aftur er fengið að láni úr miðlágþýsku temmelik(en) ‘mátulegur, hæfilegur’. Þetta er sama orð og í háþýsku ziemlich ‘allnokkur, þó nokkur’. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá 18. öld og sama gegnir um atviksorðið temmilega.

Engar heimildir hafa fundist um orðmyndina temmt og ekki finnst hún heldur í dönskum orðabókum.

Á miðlágþýsku þýðir temmelik(en) ‘mátulegur, hæfilegur’.

Heimildir:

  • Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.3.2019

Spyrjandi

Ásdís Ómarsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið temmilegt?“ Vísindavefurinn, 21. mars 2019, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=76380.

Guðrún Kvaran. (2019, 21. mars). Hvaðan kemur orðið temmilegt? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=76380

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið temmilegt?“ Vísindavefurinn. 21. mar. 2019. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=76380>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...