vísa e-u (heim) aftur til föðurhúsanna: Jeg leyfi mjer því að vísa aftur til föðurhúsanna þeim aðfinslum sem hún (stjórnin) hefir beint bæði til mín og annara, en sem hún [þ.e. stjórnin] á beinlínis sjálf.

Með orðinu föðurhús er átt við það heimili sem einhver ólst upp á með foreldrum sínum. Orðasambandið að vísa einhverju aftur til föðurhúsa merkir að ‘vísa einhverju á bug og senda það aftur þangað sem það er upprunnið’.
- Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans.