Sofa rottur á næturnar eða daginn. Ég þarf að fylla í rottuholu utandyra og vill ekki eiga á hættu að loka rottuna inni undir húsinu.Það er misjafnt hvenær sólahringsins dýr eru virkust. Sum athafna sig helst á nóttunni (e. nocturnal), önnur á daginn (e. diurnal) og svo eru þau sem sýna mesta virkni í ljósaskiptunum (e. crepuscular). Aðeins ein af hverjum fimm spendýrategundum athafnar sig mest á daginn, þar á meðal við mennirnir og þær tegundir sem eru okkur skyldastar, simpansar, górillur, bónóbóar og órangútanar. Stærstur hluti spendýra telst hins vegar til næturdýra. Ástæðuna fyrir þessu er hægt að rekja til upphafs spendýra fyrir rúmum hundrað milljón árum. Þá réðu risaeðlurnar ríkjum og þær voru á ferli yfir daginn en þau smávöxnu spendýr sem lifðu þá og minntu helst á nagdýr okkar tíma, voru á ferli á nóttunni. Þetta hentaði vel þegar fjölmargir afræningjar voru virkir yfir daginn. Þessi aðlögun er enn ríkjandi þótt fjölmargir afræningja hafi aðlagast náttmyrkrinu eða ljósaskiptunum.

Rottur, eins og flest nagdýr, eru fyrst og fremst á ferli á nóttunni en þó má sjá þeim bregða fyrir yfir daginn.
- Brown Rat (Rattus norvegicus) (5642928470).jpg - Wikimedia Commons. (Sótt 26. 2. 2018).