Sólin Sólin Rís 10:26 • sest 16:02 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:04 • Sest 15:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:05 • Síðdegis: 13:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:12 • Síðdegis: 20:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver bjó til fyrstu orðin?

EDS

Við vitum ekki hver bjó til fyrstu orðin en það er óralangt síðan þau urðu til. Flestir gera ráð fyrir að fyrstu orðin hafi verið einhvers konar hljóðlíkingar þar sem maðurinn reyndi að líkja eftir því sem hann heyrði í náttúrunni umhverfis sig, rennsli vatns, hljóðum fugla og svo framvegis. Síðan hafi þessi hljóð smám saman þróast yfir í orð og tungumál.

Fyrstu orðin voru sennilega hljóðlíkingar þar sem maðurinn reyndi að líkja eftir því sem hann heyrði í náttúrunni umhverfis sig, til dæmis eftir rennsli vatns.

Hægt er að lesa meira um þetta í svari Guðrúnar Kvaran við spurningunni Hvernig urðu orð til? Einnig má benda á svar Diane Nelson við spurningunni Hvernig verður tungumál til? og svar Þorsteins Vilhjálmssonar Hver bjó til tungumálið islensku?
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Mynd:

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

4.4.2008

Síðast uppfært

10.7.2018

Spyrjandi

Birgitta Rut Ásudóttir, f. 1997

Tilvísun

EDS. „Hver bjó til fyrstu orðin?“ Vísindavefurinn, 4. apríl 2008, sótt 24. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=7306.

EDS. (2008, 4. apríl). Hver bjó til fyrstu orðin? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=7306

EDS. „Hver bjó til fyrstu orðin?“ Vísindavefurinn. 4. apr. 2008. Vefsíða. 24. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=7306>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...