Sólin Sólin Rís 09:06 • sest 17:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 06:24 • Sest 16:46 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:17 • Síðdegis: 17:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:24 • Síðdegis: 23:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hve margir hafa farið til tunglsins?

EDS

Alls hafa tólf menn komið til tunglsins og tíu til viðbótar komist á braut um það. Allir fóru þeir á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA.

Menn stigu í fyrsta skipti á tunglið þann 20. júlí 1969 en það voru þeir Neil Armstrong og Edwin „Buzz“ Aldrin. Þeir voru í um 2 ½ klukkustund á tunglinu.

Næstu þrjú árin sendu bandaríkjamenn fleiri mönnuð geimför til tunglsins. Síðustu mennirnir til þess að ganga á tunglinu, hingað til, voru þeir Eugene Cernan og Harrison H. Schmitt sem spókuðu sig þar þann 11. desember 1972.

Til frekari fróðleiks er bent á svar við spurningunni Hvað hafa margir menn farið til tunglsins og hvernig líta þeir út? Einnig má benda á að á Vísindavefnum eru fjölmörg svör um tunglið sem hægt er að finna með því að nota leitarvél vefsins.

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

29.2.2008

Spyrjandi

Hildur Karen Jóhannsdóttir

Tilvísun

EDS. „Hve margir hafa farið til tunglsins?“ Vísindavefurinn, 29. febrúar 2008, sótt 30. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=7111.

EDS. (2008, 29. febrúar). Hve margir hafa farið til tunglsins? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=7111

EDS. „Hve margir hafa farið til tunglsins?“ Vísindavefurinn. 29. feb. 2008. Vefsíða. 30. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=7111>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hve margir hafa farið til tunglsins?
Alls hafa tólf menn komið til tunglsins og tíu til viðbótar komist á braut um það. Allir fóru þeir á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA.

Menn stigu í fyrsta skipti á tunglið þann 20. júlí 1969 en það voru þeir Neil Armstrong og Edwin „Buzz“ Aldrin. Þeir voru í um 2 ½ klukkustund á tunglinu.

Næstu þrjú árin sendu bandaríkjamenn fleiri mönnuð geimför til tunglsins. Síðustu mennirnir til þess að ganga á tunglinu, hingað til, voru þeir Eugene Cernan og Harrison H. Schmitt sem spókuðu sig þar þann 11. desember 1972.

Til frekari fróðleiks er bent á svar við spurningunni Hvað hafa margir menn farið til tunglsins og hvernig líta þeir út? Einnig má benda á að á Vísindavefnum eru fjölmörg svör um tunglið sem hægt er að finna með því að nota leitarvél vefsins.

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....