Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Í tilefni af útgáfu bókarinnar Af hverju gjósa fjöll? Spurningar og svör af Vísindavefnum um eldgos hefur verið opnuð myndlistarsýning á vatnslitamyndum Þórarins Más Baldurssonar úr bókinni. Sýningin er í Tröð, sem er gangurinn milli Háskólatorgs og Gimlis. Sýningin er opin allan nóvembermánuð.
Bókinni Af hverju gjósa fjöll er sérstaklega ætlað að kynna nútíma vísindi fyrir börnum á öllum aldri. Í bókinni er að finna 40 spurningar og svör um eldgos auk margs konar fróðleiksmola og tenginga við umhverfi okkar. Bókin hefur fengið góðar viðtökur og þess má geta að hún fékk fjóra og hálfa stjörnu í bókadómi í Morgunblaðinu á dögunum.
Sýningin á myndum Þórarins Más Baldurssonar úr bókinni Af hverju gjósa fjöll? er haldin í Tröð.
Á meðan á myndlistarsýningunni stendur er bókin seld á sérstöku tilboðsverði í Bóksölu stúdenta. Bókina er einnig hægt að nálgast í vefverslun Forlagsins.
Ritstjórn Vísindavefsins. „Myndlistarsýning í Tröð.“ Vísindavefurinn, 4. nóvember 2011, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=70897.
Ritstjórn Vísindavefsins. (2011, 4. nóvember). Myndlistarsýning í Tröð. Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=70897