Sólin Sólin Rís 10:17 • sest 16:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:40 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:12 • Síðdegis: 22:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:36 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Vísindavefurinn með Ásdísi Rán í Búlgaríu

Ritstjórn Vísindavefsins

Frá árinu 2007 hefur Vísindavefurinn verið í samstarfi við nokkra evrópska aðila sem miðla vísindum til almennings á Netinu. Einn þeirra heldur meðal annars úti síðu fyrir búlgörsk börn og hefur í hyggju að auka umfjöllun um nútímavísindi.

Búlgörsku samstarfsaðilarnar hafa nýlega fengið leyfi til að þýða og birta í styttri útgáfu svör af Vísindavef HÍ á sinni síðu.

Innan tíðar geta búlgarskir krakkar þess vegna lesið um það hversu margar mismunandi sudokuþrautir séu hægt að búa til, hversu djúpt íslenskir sjófuglar geta kafað, af hverju við höfum ritmál og hvert allar gasblöðrurnar fari sem fljúga upp í loftið á 17. júní.
Ásdís Rán í blöðrubúningi.
Höfundar síðastanefnda svarsins eru veðurfræðingarnir Haraldur Ólafsson og Hrafn Guðmundsson. Þeir höfðu nokkrar áhyggjur af því að búlgörsku börnin mundu rugla þeim saman við aðra þekkta Íslendinga, nefnilega Ásdísi Rán og Garðar Gunnlaugsson. Vísindavefurinn telur það ólíklegt. Við vitum ekki til þess að Ásdís Rán hafi nokkurn tíma tengst rannsóknum á helínfylltum blöðrum og krakkarnir í Búlgaríu þekkja örugglega muninn á fótboltanum sem Garðar Gunnlaugsson sparkar í og léttum blöðrum. Vel gæti því farið svo að innan tíðar öðlist nýtt íslenskt par frægð í Búlgaríu, veðurfræðingarnir Haraldur og Hrafn!

Þess má geta að svör af Vísindavefnum hafa áður birst í franskri þýðingu og eins hafa verið birt tæplega 100 svör á ensku á Vísindavefnum.

Mynd:

Útgáfudagur

20.9.2010

Spyrjandi

Ritstjórn

Efnisorð

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn með Ásdísi Rán í Búlgaríu.“ Vísindavefurinn, 20. september 2010, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=70841.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2010, 20. september). Vísindavefurinn með Ásdísi Rán í Búlgaríu. Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=70841

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn með Ásdísi Rán í Búlgaríu.“ Vísindavefurinn. 20. sep. 2010. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=70841>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...