Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Þann 5. október 2007 var skipt um útlit á Vísindavefnum. Áður leit Vísindavefurinn út eins og sést hér á myndinni og hafði reyndar verið eins í öllum aðalatriðum frá því vefnum var hleypt af stokkunum 29. janúar árið 2000.
Svona leit Vísindavefurinn út fyrir útlitsbreytinguna í október.
Nýja útlitið er hannað af Hugsmiðjunni. Það rímar við útlit aðalstyrktaraðila Vísindavefsins sem er Happdrætti Háskóla Íslands.
Með nýja útlitinu hafa einnig nokkrar breytingar verið gerðar á vefnum. Til að mynda er núna betur skýrt út hvernig leggja eigi inn spurningu og eru spyrjendur aðstoðaðir við að finna hvort þegar sé búið að svara spurningu þeirra.
Leitarvélin hefur einnig verið færð til og er núna ofarlega til hægri og mun meira áberandi. Á Vísindavefnum er núna að finna tæplega 7000 svör við spurningum gesta.
Við vonum að gestir Vísindavefsins taki þessum breytingum vel og hvetjum þá sem vilja senda okkur sitt álit á þeim að að senda ritstjórninni tölvupóst með því að smella á hlekk neðst á síðunni.
Ritstjórn Vísindavefsins. „Nýtt útlit á Vísindavefnum.“ Vísindavefurinn, 5. október 2007, sótt 28. janúar 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=70763.
Ritstjórn Vísindavefsins. (2007, 5. október). Nýtt útlit á Vísindavefnum. Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=70763