Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Hinn 1. ágúst 1998 er áætlað að um 270 milljónir hafi búið í Bandaríkjunum eða rétt um 1000 sinnum fleiri en á Íslandi (Íslendingar voru um 275 þúsund 1. desember 1998). Búast má við nákvæmari tölum um fjölda Bandaríkjamanna vegna þess að manntal hefur verið nýframkvæmt þegar þetta er skrifað (í júlí 2000) en það er tekið 10. hvert ár. Tölur úr þessu manntali verða birtar fyrir lok ársins 2000.
Sjá nánar á heimasíðu manntalsskrifstofu Bandaríkjanna (US Census Bureau).
Mynd: HB