Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Fyrr á tímum, þegar fólk var almennt bænræknara en nú gerist, leitaði það til Guðs um hjálp og styrk við erfiðleikum, sjúkdómum og öllu því sem það hrjáði. Það bað Guð um hjálp til að lifa sönnu kristnu lífi og breyta rétt gagnvart öðrum. Vissulega gera margir þetta enn, en upphrópunin ,,Guð hjálpi þér” heyrist sjaldnar en fyrir fáeinum áratugum. Hún var þó afar algeng þegar fólk var að býsnast yfir einhverju eða vildi sýna hneykslun sína. Nú á dögum lætur yngra fólk sér nægja að segja: ,,Jesus“, með enskum framburði í sama skyni.
Sú saga fylgir frásögnum af Svarta dauða að hnerri hafi verið merki þess að maður var sýktur. Pestin var mjög skæð og því hrukku menn óneitanlega við ef einhver hnerraði. Af einhverjum ástæðum hnerrar fólk oft þrisvar í röð og var þá sagt við fyrsta hnerrann: ,,Guð hjálpi þér“, við annan hnerrann: ,,styrki þig“ og við þriðja hnerrann: ,,og styðji“. Annað og meira var oft ekki hægt að gera. Þessi siður hefur haldist hjá mörgum fram á þennan dag.
Frekari upplýsingar má finna með því að nota leitarvél Vísindavefsins hér til vinstri eða með því að smella á leitarorðin hér fyrir neðan.
Mynd:rit.edu
Guðrún Kvaran. „Hvers vegna segjum við "Guð hjálpi þér"?“ Vísindavefurinn, 3. júlí 2006, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6044.
Guðrún Kvaran. (2006, 3. júlí). Hvers vegna segjum við "Guð hjálpi þér"? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6044
Guðrún Kvaran. „Hvers vegna segjum við "Guð hjálpi þér"?“ Vísindavefurinn. 3. júl. 2006. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6044>.