Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Brak í liðamótum og afleiðingar þess hefur ekki mikið verið rannsakað, en svo virðist sem það auki ekki líkurnar á liðagigt eins og gjarnan hefur verið haldið fram. Rannsóknaniðurstöður taka þó ekki af allan vafa um það mál.
Það bendir hins vegar ýmislegt til þess að sé oft og mikið látið braka í liðum geti það haft slæm áhrif á liðamótin þegar til lengri tíma er litið. Þegar brakað er í puttunum er verið að færa liðinn úr stað og teygja á liðböndunum, en með stöðugu áreiti er hætt við að liðböndin missi hluta af teygjanleika sínum og liðurinn verði viðkvæmari fyrir skemmdum.
Ekki er talið gott að láta braka í puttunum í tíma og ótíma.
Nánar er fjallað um puttabrak í svari sama höfundar við spurningunni Hvað gerist þegar maður lætur braka í puttunum?Mynd:DHD Multimedia GalleryÞetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.