Þann áttunda september afhenti Olli Rehn Jóhönnu Sigurðardóttur 2500 níðþungar spurningar. Spurningarnar voru allar úr nýjustu útgáfu af Trivial Pursuit og vonlaust átti að vera að svara þeim fyrir 16. nóvember, en það var fresturinn sem íslensk stjórnvöld áttu að fá. Að sjálfsögðu var ætlunin aldrei sú að Íslendingar kæmust inn í Evrópusambandið. Á fundi í Brüssel (Bruxelles) nú rétt fyrir hádegi afhenti Jóhanna Sigurðardóttir hins vegar Olli Rehn einfaldlega Vísindavef HÍ eins og hann leggur sig. Við það tækifæri lét fjölmiðlafulltrúi Jóhönnu þessi orð falla: "Here - mr. Olli - you have 8000 answers from the Icelandic Web of Science, so we are joining the EU, whether you like it or not!" Miðað við fjölda svara er talið líklegt að Ísland fái að taka tvær gestaþjóðir með sér í Evrópusambandið, nefnilega Zimbabve og Kúbu en þjóðirnar þrjár hafa þegar hafið með sér samstarf í gjaldeyrismálum og haftastefnu. Ef þær fá að fylgja Íslandi verður það í fyrsta skipti í sögunni sem þjóðir Afríku og Ameríku fá að tjútta með í Evrópusamstarfinu.
Á fréttamannafundi við afhendingu svaranna dró Olli af handahófi upp eitt svar úr safni Vísindavefsins en það var svarið við spurningunni Hvað merkir að Olla á hjólabrettum? Svarið vakti að sjálfsögðu mikla kátínu viðstaddra og ekki spillti fyrir þegar Olli sýndi Jóhönnu gamla takta á brettinu. Myndir:
- Facebook.com. Sótt 11.9.2009.
- UNIFEM á Íslandi, Javno og The Czech Daily Word. Sótt 11.9.2009 og breytt af Ritstjórn Vísindavefsins.
Athugið að þetta er föstudagssvar og ekki ber að taka hátíðlega neitt sem í því stendur.