Sólin Sólin Rís 10:20 • sest 16:07 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:27 • Sest 15:40 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:11 • Síðdegis: 23:50 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:43 • Síðdegis: 17:39 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða rönd er átt við þegar menn segja "í aðra röndina"?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið rönd merkir ‘brún, barmur, jaðar, rák’. Orðasambandið í aðra röndina merkir ‘að hálfu leyti, að nokkru leyti, hálfvegis’ og eru elst dæmi um það í söfnum Orðabókar Háskólans frá því um miðja 19. öld.

Líkingin í orðasambandinu er ekki fullljós. Þó gæti verið átt við brún til dæmis á umslagi þar sem ein röndin er frábrugðin annarri.

Sambandið í aðra röndina er stundum notað í samanburði, til dæmis „Í aðra röndina er hann greiðvikinn en í hina röndina fastheldinn á fé.“ Sambandið í hina röndina er einnig þekkt frá 19. öld. Líkingin er ekki ljós en hugsanlega er hér átt við brún á pappírsblaði, örk, umslagi eða einhverju slíku þar sem ein röndin er frábrugðin annarri.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

13.11.2008

Spyrjandi

Þorvaldur Vestmann

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða rönd er átt við þegar menn segja "í aðra röndina"?“ Vísindavefurinn, 13. nóvember 2008, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=49641.

Guðrún Kvaran. (2008, 13. nóvember). Hvaða rönd er átt við þegar menn segja "í aðra röndina"? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=49641

Guðrún Kvaran. „Hvaða rönd er átt við þegar menn segja "í aðra röndina"?“ Vísindavefurinn. 13. nóv. 2008. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=49641>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...