Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Atlantshafshryggurinn er hluti af miðhafshryggjakerfinu sem er um 75.000 km langt og hlykkjast um alla jörðina. Það mun vera stærsta einstaka jarðfræðifyrirbæri á yfirborði jarðar. Hryggirnir rísa yfirleitt nokkur þúsund metra yfir djúphafssléttuna og sums staðar ná eldfjöll á hryggnum upp úr sjó eða jafnvel hryggurinn sjálfur — Ísland er dæmi um það.
Miðhafshryggjakerfið sést hér eins og dökkir saumar á hafsbotninum.
Mið-Atlantshafshryggurinn nær frá Gakkel-hrygg í norðri (um 82°N 0°A) til Bouvet-eyjar í suðri (54°26’S 3°24’E) – þetta eru um 134,5° eftir N-S stórbaug þannig að fjarlægðin er ummál jarðar (2 π R) x hlutfallið af heilum hring (134,5 / 360) = 2 x π x 6378 km x 134,5/360 = 14.972 km.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
Sigurður Steinþórsson. „Hvað er Atlantshafshryggurinn langur?“ Vísindavefurinn, 16. október 2008, sótt 23. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=48443.
Sigurður Steinþórsson. (2008, 16. október). Hvað er Atlantshafshryggurinn langur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=48443
Sigurður Steinþórsson. „Hvað er Atlantshafshryggurinn langur?“ Vísindavefurinn. 16. okt. 2008. Vefsíða. 23. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=48443>.