Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Það er einföld skýring á því af hverju orðið buff er notað um höfuðklútana sem sjást hér á myndinni. Buff er einfaldlega skrásett vörumerki og er heiti fyrirtækisins fullum stöfum Original Buff S.A. Fyrirtækið er í borginni Igualada, lítilli borg 60 km frá Barcelona.
Framleiðsla Original buff® hófst 1992 og sala til annarra Evrópulanda 1995. Heitið buff hefur fylgt klútunum nánast hvar sem þeir hafa verið seldir, meðal annars hérlendis.
Guðrún Kvaran. „Hvers vegna eru höfuðbuffin kölluð "buff"?“ Vísindavefurinn, 2. september 2008, sótt 23. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=48433.
Guðrún Kvaran. (2008, 2. september). Hvers vegna eru höfuðbuffin kölluð "buff"? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=48433
Guðrún Kvaran. „Hvers vegna eru höfuðbuffin kölluð "buff"?“ Vísindavefurinn. 2. sep. 2008. Vefsíða. 23. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=48433>.