Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
ForsíðaHugvísindiörnefniFoss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?
Fossinn heitir Dynjandi og dregur nafn af hljóði sínu. Nöfn á fossum og ám eru oft mynduð með –andi, samanber Rjúkandi, Mígandi.
Nafnið Fjallfoss á fossinum er rangnefni, en sagt er um bæinn Dynjanda í sóknarlýsingu Rafnseyrarkirkjusóknar 1839 eftir sr. Sigurð Jónsson, að hann taki „nafn af stórum fjallfossi árinnar, sem rennur hjá bænum“ (19). Er þá vafalaust átt við að hann steypist ofan af fjallsbrún.
Svavar Sigmundsson. „Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?“ Vísindavefurinn, 22. október 2008, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=47894.
Svavar Sigmundsson. (2008, 22. október). Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=47894
Svavar Sigmundsson. „Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?“ Vísindavefurinn. 22. okt. 2008. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=47894>.